Úrval - 01.04.1956, Qupperneq 72
70
ÚRVAL
Þessa aðferð er nú hægt að
yfirfæra á hverskonar fram-
leiðslu, eftir að rafeindaheilinn
hefur skapað skilyrði til þess.
Einnig hér er gataspjaldið und-
irstaða hinnar sjálfvirku fram-
leiðslu, því að það stýrir, með
aðstoð rafeindaheilans, _ öllum
gangi framleiðslunnar. I gata-
spjaldið er allt undirbúnings-
hugarstarf mannsins mótað,
hundruð hugmynda þúsunda
heila. En þegar það hefur einu
sinni verið mótað á spjaldið,
tekur rafeindaheilinn við stjórn.
inni. Við færibandið má þá setja
í stað manna þar til gerðar vél-
ar, sem gera nákvæmlega sömu
handtök og verkamennirnir
gerðu áður. Einmitt vegna þess
að hreyfingar og handtök hvers
verkamanns höfðu verið gerð
svo einföld og fábrotin, geta
stálhendur nú tekið við af
mannshöndum, og í stað manns-
augans getur komið rafmagns-
augað eða fótósellan, sem með
raftaugakerfi sínu stjórnar
gangi verksins í samræmi við
það sem í upphafi var mótað á
gataspjald rafeindaheilans.
Á þennan hátt hafa Ford-
verksmiðjurnar í Detroit um
nokkurt skeið smíðað og sett
saman hreyfla án þess að
mannshönd komi þar nokkurs-
staðar nærri. Skæðasti keppi-
nautur þeirra, General Motors,
hefur einnig tekið upp sjálf-
virkni í framleiðslu sinni. í
mörgum öðrum iðngreinum er
farið að taka meira og minna
sjálfvirkar vélar í notkun, og
sjá menn nú hilla undir fram-
tíðardrauminn: algerlega sjálf-
virka verksmiðju, sem mötuð
er (sjálfvirkt) á hráefninu og
skilar frá sér hlutnum fullgerð-
um, hvort sem það er nú bíll,
smíðavél, útvarps- eða sjón-
varpstæki. Hið mikla verk-
smiðjubákn verður mannlaust,
ef frá eru taldir örfáir eftirlits-
menn, sem þar eru á ferli.
En til þess að leysa af hendi
hina geysimiklu og margbrotnu
undirbúningsvinnu, sem nauð-
synleg er áður en hin sjálfvirka
framleiðsla getur hafizt, þarf
mikinn f jölda vísinda- og tækni-
lærðra manna; ekki verður held-
ur komizt hjá því að hafa menn
til þess að líta eftir hinum sjálf-
virku vélum. Kröfurnar, sem
gerðar verða til verkamannsins
í þessum verksmiðjum verða
þannig miklar, hann hefur sig
upp yfir vélina, verður ekki leng-
ur þræll hennar, heldur umsjón-
armaður og tæknifræðingur,
hann þarf ekki lengur að standa
við færibandið, sjálfvirk vél hef-
ur tekið við því hlutverki. I
þessa átt mun þróunin stefna
næstu áratugina, þetta er síð-
ari iðnbyltingin, og hún mun
miklu fremur verða til góðs en
ills, því að hún mun losa mann-
inn undan þrældómsoki vélanna
og lyfta honum aftur upp í sinn
fyrri virðingarsess.
Það er í hæsta máta tíma-
bært, að þessi nýja iðnbylting
skuli hafa fært oss þessar sjálf-