Úrval - 01.04.1956, Page 102

Úrval - 01.04.1956, Page 102
100 tTRVAL, Hann leit á klukkuna. Ég benti á, að enn væri ekki áliðið kvölds. Hann fullvissað mig um, að frásögnin væri ekki löng. Ég kvaðst vona að hún væri það. Hann sagði að þetta væri mjög vinsamlega mælt af mér. Ég bar á móti því. Hann gaf í skyn, að frásögn hans myndi styrkja hina veiku trú mína á lófalestr- inum og kollvarpa öllum rök- stuðning um frjálsan vilja. ,,Það skiptir engu máli,“ sagði ég. Hann rétti höndina annars hug- ar að eldinum. Ég hagræddi mér í stólnum. * „Þessar hendur bera þess vott að ég er mjög veiklundaður mað- ur,“ sagði hann. „Ég býst við að þér séuð nógu fróður í lófa- lestri til að sjá það. Þér sjáið að þumalfingurinn og vísifing- urinn eru mjög litlir. Þetta eru hendur viljalítils og viðkvæms manns — manns, sem skortir sjálfstraust og hopar þegar á hólminn kemur. Hamlet hafði svona hendur,“ sagði hann og brosti. „Það er fleira líkt með mér og Hamlet: ég er ekki brjálaður, samvizka mín er við- kvæm og ég er óheppinn. En Hamlet var að einu leyti heppn- aiú en ég: hörmulegar aðstæð- ur ollu því að hann drýgði morð, en morðin sem ég framdi fyrir fjórtán árum — því að það var ekki eitt morð heldur mörg — voru öll því að kanna að ég var veiklundaður. Ég var tuttugu og sex — nei, tuttugu og sjö ára gamall. Ætlunin var, að ég yrði mál- færslumaður. Ég lauk meira að segja prófi. En ég ætlaði mér aldrei að leggja stund á mál- færslustörf, enda gerði ég það ekki. Ég aflaði mér atvinnurétt- inda til að sýnast. Þetta er í fyrsta skipti sem ég flyt mál: ég er að halda uppi vörn fyrir morðingja. Faðir minn arfleiddi mig að allmiklu fé. Ég gat gert það sem mér sýndist. Ég hafði mörg hugðarefni. Eitt þeirra var lófalestur. Það var ekki laust við að ég blygðaðist mín fyrir það. Það fór fyr- ir mér eins og yður; mér þótti lófalestur fjarstæða, en þó trúði ég á hann. En ég hafði það fram yfir yð- ur, að ég hafði lesið mikinn fjölda bóka um þessa list. Og“ ég hafði tekið afsteypur af höndum vina minna. Ég hafði þrautprófað þau atriði, þar sem Desbarolles víkur frá reglum Sígaunanna — í stuttu máli, ég' hafði kynnt mér efnið vandlega og var orðinn eins snjall lófa- lesari og unnt er að vera, án þess að gera lófalestur að ævi- starfi. Eitt af því fyrsta, sem ég las í lófa mínum var það, að ég' myndi komast í bráða lífshættu þegar ég væri tuttugu og sex ára gamall. Lifslínan var ber- sýnilega slitin á einum stað, en verndarmerkið var þar líka, þér kannist við það? Línurnar voru
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.