Bókasafnið - 01.01.2002, Side 6
Það er stutt á milli bókabúðanna í Hay-on-Wye.
eru 38 fornbóksölur með yfir milljón bækur í hillum,
opið alla daga vikunnar og þar eru bækur við hæfi
hvers og eins.
Auðvitað er í bænum dálítið almenningsbókasafn
þar sem welskur bókavörður, llyfrgellydd, ræður ríkj-
um. Safnið er næsta hefðbundið með barnadeild, full-
orðinsdeild og blaðahorni. En safngestir eru ekki
margir, enda á brattann að sækja þegar a.m.k. 12
fornbóksölur eru í 50-100 m fjarlægð allt um kring.
Stærsta fornbóksalan er Richard Booth's Boofeshop
við Lion Street þar sem um 400 000 bækur úr öllum
efnisflokkum standa í hillum, flestar innandyra á
jarðhæð, efri hæð eða í kjallara, í nærliggjandi
geymslum eða utandyra í bakgörðum, og er þá breitt
plast yfir þær þegar úrhelli ganga yfir. Aðrir fornsalar
hafa sumir kosið að sérhæfa sig á ákveðnum sviðum.
Sem dæmi má nefna The Children’s Boofeshop á tveimur
stöðum í bænum þar sem annars vegar eru 15 000
bækur um barnabækur, hins vegar bækur fyrir börn;
The Poetry Boofeshop með ljóðabækur; The Lion Street
Boofeshop sem sérhæfir sig í bókum um hnefaleika, og
Murder & Mayhem sem auglýsir: „Walk or stalfe into the
world of Detectiue Fiction, True Crime and Horror. The
Basfeeruille Hound, Christie
& Poe ruelcome you to the
most bizarre and outra-
geously decorated boofeshop
in Hay-on-Wye.“
Flestar fornsölurnar
eru í húsnæði sem upp-
haflega var byggt fyrir
annað en bókabúðir, t.d.
íbúðir þar sem allir veggir
í öllum herbergjum á
jarðhæð og efri hæð eru
þaktir bókahillum auk
þess sem hillustæður eru
úti á gólfi. Kjallarinn er
líka fullur af bókum og
sumsstaðar lágt undir
loft; bækurnar á efri hæð-
unum eru þungar svo
gólfviðir hafa sigið í átt
að jarðarmiðju. Vinsam-
lega orðuð skilti til að
bókakaupendur gæti sín
á hættunum hanga uppi
á völdum stöðum: „Please
mind your head"; á ein-
staka stað er mönnum
reyndar boðið að velja
sjálfir: „Bend or bump! "
Eins og í stórum al-
hliða bókasöfnum kennir
margra grasa í hinum
stærstu fornbóksölum.
Þar eru bækur um allt milli himins og jarðar, jafnvel
óþarfa bækur ef rétt hefði verið á haldið: Organising
your second marriage hefði getað verið óskrifuð ef
hollráð um fyrsta hjónabandið hefðu slegið öll
sölumet. í fornsölunni Hay-on-Wye Boofesellers í High
Town er auk notaðra bóka margt nýlegra bóka á
hálfvirði sem án efa mun „suit scholars, collectors and
light-hearted bookiuorms." Eitt ritið sem ekki hefur
tekist að selja fullu verði er vísindaleg — eða öllu
heldur vísindalík — úttekt á fyrirbærinu Why Cats
Paint. Bókin sem hefur undirtitilinn A theory offeline
aesthetics er eftir Heather Busch og Burton Silver,
stórglæsilegt litprentað 96 blaðsíðna rit í stóru broti
sem út kom árið 1994 í London (ISBN 0-297-83351-0)
og Berkeley, Kaliforníu (ISBN 0-89815-612-2). Eins og
alvöru vísindariti er verkinu skipt í kafla: An Historical
Perspective; Theories o/ Feline Marking Behaviour; Twelve
Major Artists (þar sem fjallað er um tólf ketti sem lagt
hafa fyrir sig málaralistina, flestir meira og minna
innblásnir af Van Gogh) og Other forms of Artistic Ex-
pression. í bókarlok er að sjálfsögðu Selected Biblio-
graphy sem hefst á Copy Cats : euidence o/ representa-
tional invertism in feline territorial demarcation actiuity
4
BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002