Bókasafnið - 01.01.2002, Side 19

Bókasafnið - 01.01.2002, Side 19
rz ■o JD. 05 O) Q. C 'o O) CO CD ö 03 C t :0 -Q. C0 O) *o > '03 *o 0) co c 'o) O) *o < '< xO 2 vr> xo 6 ’53 ÖQ O) o c 03 E 03 Grundvallaratriði í bókasafnsfærni Tölvufærni Mynd 1 - Upplýsinga/œrmslíkan. Heimild: Information sfeills in higher education : a SCONUL briefmg paper. Prepared by the Tasfe Force on Information sfeills conuened by Hilary Johnson. London: SCONUL, 1999. upplýsinga (nemendur á sínum fyrstu námsárum) þar til þeir hafa öðlast vissa færni í notkun þeirra (nemendur á lokaári eða í framhaldsnámi). Framför nemendanna byggist á þessum sjö þáttum sem lýst er í myndinni hér að ofan. Ástralía Nálgun Christine Bruce frá Ástralíu við skilgreiningu á upplýsingalæsi er áhugaverð og ólík öðrum. Sam- kvæmt kenningum hennar er mismunandi hvernig einstaklingar upplifa fyrirbærið upplýsingalæsi, þ.e.a.s. áhersla hennar er á upplifun og reynsluheim einstak- linganna og áhrif þeirra á það hvernig þeir upplifa og skilja upplýsingalæsi. Bruce fjallar um sjö mismunandi svið upplýsingalæsis. Hvert þeirra inniheldur þrjú grundvallaratriði, þ.e. upplýsingatækni, notkun upp- lýsinga og þriðja atriðið sem er breytilegt. Samantekt á kenningum Bruce er að fmna á Internetinu auk þess sem hún hefur skrifað fjölda greina um efnið. Upplýsingasamfélagið Umrædd þróun samfélags okkar í átt að upplýsinga- samfélagi og gríðarlegt magn upplýsinga, m.a. á Internetinu, kallar á breyttar áherslur í notenda- fræðslu háskólabókasafna. Segja má að það sé því víðtæk krafa til háskólabókasafnanna um allan heim að sinna kennslu og þjálfun í upplýsingalæsi. Hafa mörg þeirra þegar viðurkennt að þau verði að undir- búa nemendur sína fyrir upplýsingasamfélagið með því að kenna þeim upplýsingalæsi og gera þá þannig færa um að endurmennta sig og vera tilbúna að tak- ast á við hið síbreytilega umhverfi atvinnumarkað- arins. Ný kynslóð nemenda Á síðustu árum hefur nemendum í háskólanámi fjölgað verulega. Núverandi háskólanemar hafa alist upp með Internetinu og kunna að vafra þar en almenn tölvuþekking þeirra er þó mjög mismunandi BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002 17

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.