Gátt - 2004, Page 27
27
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Einn mola mætti svo bjóða hér að lokum. Þegar þátt-
takendur voru spurðir hvort þeir myndu treysta sér til að
skrifa grein til birtingar í dagblaði, t.d. minningargrein,
svöruðu 92% þeirri spurningu játandi. Hlýtur þetta ekki að
vera einhvers konar met?
Afar áhugavert var að ræða lestur og ritun við þátt-
takendur og margt vakti til umhugsunar. Þar má til dæmis
nefna að flestir töldu að þeim gæti farið fram í lestri og
ritun og höfðu skoðun á því hvað þeir teldu að sig skorti
helst og hvers konar aðstoð gæti komið að gagni.
Vonandi geta þessar upplýsingar nýst við símenntun á
komandi árum.
Þakkir
Rannsakendur eru mörgum þakklátir fyrir margvíslegan
stuðning. Má þar fyrst nefna beina stuðningsaðila sem
eru Oddssjóður Reykjalundar, Kennaraháskóli Íslands,
menntamálaráðuneytið, Efling, Starfsafl og síðast en ekki
síst Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Einnig ber að þakka af
alhug þeim fyrirtækjum og stofnunum sem leyfðu
rannsakendum að koma „inn á gafl til sín“ og hinum ágætu
starfsmannastjórum og fræðslustjórum sem stóðu sig
frábærlega við alla aðstoð og skipulagningu. Rann-
sóknarstjóra Reykjalundar, Mörtu Guðjónsdóttur og
Amalíu Björnsdóttur, dósent við KHÍ, eru færðar
alúðarþakkir fyrir góð ráð og liðveislu. Að lokum er rétt að
þakka þeim sem voru allra mikilvægastir – en það er á
fjórða hundrað þátttakenda á ýmsum vinnustöðum
landsins sem létu sig hafa það að rabba við ókunnugt fólk
um lestur og skrift og meira að segja taka lestrarpróf í
þágu vísindanna.
Elísabet Arnardóttir,
talmeinafræðingur á Reykjalundi.
Guðmundur Kristmundsson,
dósent við Kennaraháskóla Íslands.
Heimildir
Aðalnámskrá grunnskóla. 1999. Reykjavík, menntamálaráðuneytið.
Aukin lestrarfærni fullorðinna. Tillögur um úrræði og leiðir. 2002.
Reykjavík, menntamálaráðuneytið.
Sigríður Þ. Valgeirsdóttir. 1993. Læsi íslenskra barna. Reykjavík, mennta-
málaráðuneytið, Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála,
Kennaraháskóli Íslands.
Vinnumarkaður. 2002. Reykjavík, Hagstofa Íslands.