Gátt - 2004, Page 36
36
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
En skilyrði þess að ná góðum árangri með matinu er að
þátttakendur geti átt samskipti á sænsku við vinnutengdar
aðstæður og þekki til aðstæðna á vinnumarkaði í Svíþjóð.
Kynning fyrir nýbúa í Málmey fer þannig fram að í lok
kynningartímabils geta nýbúarnir fengið færni sína
metna og gengist undir próf í sænsku fyrir innflytjendur. Í
kynningunni felst kennsla í bæði almennri og
starfsmiðaðri sænsku. Þar að auki starfsfræðsla sem er
bæði fræðileg og verkleg og miðast við bakgrunn
nýbúanna, menntun þeirra og fyrri störf.
Skráning
Sökum þess hve mikilvægt er að skrá mat á færni á þann
hátt, sem er viðurkenndur um alla Svíþjóð, hefur hingað
til verðið talið eðlilegt að meta miðað við kröfur sem
gerðar eru í framhaldsskólanum. Þátttakendur fá þar
með staðfestingu frá framhaldsskóla fyrir þau námskeið
sem þeir hafa fengið metin.
Samt sem áður hefur komið í ljós að námskrá framhalds-
skólanna er alltof takmarkað verkfæri til þess að nota til
samanburðar. Margir einstaklingar hafa starfsreynslu
sem ekki er hægt að bera saman við starfsmenntun í
framhaldsskóla. Þess vegna er brýnt að þróa skráningu í
samvinnu við atvinnugreinarnar með því að nota að hluta
til það sem til er og að hluta til þróa betra form við
skráningu.
Starfsemin fram t i l þessa
Frá upphafi hefur starfsemin beinst að því að þróa að-
ferðir við mat, fyrst og fremst í samanburði við námskeið
á framhaldsskólastigi. Í byrjun voru samræður við fulltrúa
atvinnulífsins á svæðinu í því augnamiði að draga fram
skilyrði fyrir staðfestingu á færni samkvæmt áformum
(Valideringsutredningen) Raunfærnirannsóknarinnar. Í
ljós kom að ekki reyndist unnt að setja þannig skilyrði.
Árið 2004 hófst þróunarvinna við að meta á vinnustað í
samanburði við starfslýsingu svo hægt væri að meta þá
sem hafa starfsreynslu sem ekki er hægt að meta að
jöfnu við neina braut á framhaldsskólastigi.
Í verkefninu, sem styrkt er af flóttamannasjóði ESB, hófst
vinna við þróun færnimöppu. Samstarfsaðilar í Málmey
álíta fært að meta færni einstaklings eftir vel skipulagðri
færnimöppu. Færnimappa hentar einnig vel til þess að
leiða í ljós og skrásetja metna færni.
Þá hefur komið í ljós að sumir hafa þörf fyrir að gangast
undir stutt, aðgengilegt mat á hæfni til þess að vinna
innan ákveðinna starfsgreina. Hafin er þróunarvinna,
styrkt af félagsmálasjóði Evrópu, innan ramma
verkefnisins „Mat í samstarfi“.
Unnið verður að þróun færnimöppu, starfsmati og mati
sem felst í samanburði við námskeið framhaldsskólans
og skilyrða sem atvinnuvegirnir setja fram að beiðni
Raunfærnimatsnefndarinnar.
Umfang
Frá því að sjálf matsvinnan hófst og fram á fyrsta helming
ársins 2004 hafa 420 manns gengið í gegnum mat í
samanburði við námskeið á ýmsum brautum framhalds-
skólans, eins og umönnun, iðnað, börn og frístundir,
samgöngur – bílstjóra, veitingarekstur – matreiðslu,
hagfræði og rafvirkjun. Flestir hafa verið metnir í umönn-
unargeiranum eða 305 manns, þar af 182 starfsmenn í
öldrunarþjónustu borgarinnar.
Haustið 2004 munu 44 nýir nýbúar verða metnir eftir
starfsgreiningu á vinnustað. Það eru nýbúar sem tóku þátt
í kynningardagskrá fyrir nýaðflutta á vegum Málmeyjar
sem fór fram hjá Lernia hf.
Í vinnu við þróun færnimöppu, sem var hluti af kynningar-
dagskránni, luku 164 einstaklingar við fyrstu útgáfu sína
af færnimöppu. Að beiðni stjórnvalda í Kronoberg luku 33
einstaklingar, sem störfuðu við fyrirtæki í Alvesta sem
hætti starfsemi sinni í Svíþjóð, við færnimöppur sínar með
leiðbeiningum frá Raunfærnimiðstöðinni. Í upphafi verk-
efnisins, „Mat í samstarfi“ luku 13 atvinnulausir einstakl-