Gátt


Gátt - 2004, Síða 36

Gátt - 2004, Síða 36
36 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S En skilyrði þess að ná góðum árangri með matinu er að þátttakendur geti átt samskipti á sænsku við vinnutengdar aðstæður og þekki til aðstæðna á vinnumarkaði í Svíþjóð. Kynning fyrir nýbúa í Málmey fer þannig fram að í lok kynningartímabils geta nýbúarnir fengið færni sína metna og gengist undir próf í sænsku fyrir innflytjendur. Í kynningunni felst kennsla í bæði almennri og starfsmiðaðri sænsku. Þar að auki starfsfræðsla sem er bæði fræðileg og verkleg og miðast við bakgrunn nýbúanna, menntun þeirra og fyrri störf. Skráning Sökum þess hve mikilvægt er að skrá mat á færni á þann hátt, sem er viðurkenndur um alla Svíþjóð, hefur hingað til verðið talið eðlilegt að meta miðað við kröfur sem gerðar eru í framhaldsskólanum. Þátttakendur fá þar með staðfestingu frá framhaldsskóla fyrir þau námskeið sem þeir hafa fengið metin. Samt sem áður hefur komið í ljós að námskrá framhalds- skólanna er alltof takmarkað verkfæri til þess að nota til samanburðar. Margir einstaklingar hafa starfsreynslu sem ekki er hægt að bera saman við starfsmenntun í framhaldsskóla. Þess vegna er brýnt að þróa skráningu í samvinnu við atvinnugreinarnar með því að nota að hluta til það sem til er og að hluta til þróa betra form við skráningu. Starfsemin fram t i l þessa Frá upphafi hefur starfsemin beinst að því að þróa að- ferðir við mat, fyrst og fremst í samanburði við námskeið á framhaldsskólastigi. Í byrjun voru samræður við fulltrúa atvinnulífsins á svæðinu í því augnamiði að draga fram skilyrði fyrir staðfestingu á færni samkvæmt áformum (Valideringsutredningen) Raunfærnirannsóknarinnar. Í ljós kom að ekki reyndist unnt að setja þannig skilyrði. Árið 2004 hófst þróunarvinna við að meta á vinnustað í samanburði við starfslýsingu svo hægt væri að meta þá sem hafa starfsreynslu sem ekki er hægt að meta að jöfnu við neina braut á framhaldsskólastigi. Í verkefninu, sem styrkt er af flóttamannasjóði ESB, hófst vinna við þróun færnimöppu. Samstarfsaðilar í Málmey álíta fært að meta færni einstaklings eftir vel skipulagðri færnimöppu. Færnimappa hentar einnig vel til þess að leiða í ljós og skrásetja metna færni. Þá hefur komið í ljós að sumir hafa þörf fyrir að gangast undir stutt, aðgengilegt mat á hæfni til þess að vinna innan ákveðinna starfsgreina. Hafin er þróunarvinna, styrkt af félagsmálasjóði Evrópu, innan ramma verkefnisins „Mat í samstarfi“. Unnið verður að þróun færnimöppu, starfsmati og mati sem felst í samanburði við námskeið framhaldsskólans og skilyrða sem atvinnuvegirnir setja fram að beiðni Raunfærnimatsnefndarinnar. Umfang Frá því að sjálf matsvinnan hófst og fram á fyrsta helming ársins 2004 hafa 420 manns gengið í gegnum mat í samanburði við námskeið á ýmsum brautum framhalds- skólans, eins og umönnun, iðnað, börn og frístundir, samgöngur – bílstjóra, veitingarekstur – matreiðslu, hagfræði og rafvirkjun. Flestir hafa verið metnir í umönn- unargeiranum eða 305 manns, þar af 182 starfsmenn í öldrunarþjónustu borgarinnar. Haustið 2004 munu 44 nýir nýbúar verða metnir eftir starfsgreiningu á vinnustað. Það eru nýbúar sem tóku þátt í kynningardagskrá fyrir nýaðflutta á vegum Málmeyjar sem fór fram hjá Lernia hf. Í vinnu við þróun færnimöppu, sem var hluti af kynningar- dagskránni, luku 164 einstaklingar við fyrstu útgáfu sína af færnimöppu. Að beiðni stjórnvalda í Kronoberg luku 33 einstaklingar, sem störfuðu við fyrirtæki í Alvesta sem hætti starfsemi sinni í Svíþjóð, við færnimöppur sínar með leiðbeiningum frá Raunfærnimiðstöðinni. Í upphafi verk- efnisins, „Mat í samstarfi“ luku 13 atvinnulausir einstakl-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.