Gátt


Gátt - 2004, Síða 75

Gátt - 2004, Síða 75
75 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S þessi almennu ruglorð 217 en vegna flóknari málfræði og fleiri orðmynda verða þau þó nokkuð fleiri í íslensku. Sérhvert orð eða hugtak, sem veldur ruglingi, er hægt að meistra með leirmótuninni. Það getur verið stórkostlegt að sjá hve skapandi jafnvel yngstu börn geta verið þegar kemur að því að túlka merkingu óhlutbundinna hugtaka. Lesblindir hafa almennt mjög gaman af því að móta hugmyndir í leir þannig að námskeiðið verður gefandi og skemmtilegt fyrir báða aðila. Með því að móta útlit orðsins í leir ásamt merkingunni nær viðkomandi einnig fullu valdi á stafsetningunni. Að meistra námsefni Þessari meistrunaraðferð - að tileinka sér með leirmótun - er hægt að beita á hvaða námsefni sem er. Þegar viðkomandi hefur náð fullum tökum á meistruninni beitir hann henni við allt nám, einfaldlega vegna þess að þessi aðferð er sú fljótvirkasta og áhrifamesta sem honum stendur til boða. Stærðfræði verður til dæmis einfaldari þegar hún er túlkuð í þrívíðum leirmyndum. Með því móti er hægt að sjá magn og fjölda í raunveruleikanum ásamt því samhengi sem lýst er í stærðfræðidæminu. Sömu- leiðis er hægt að meistra merkingu stærðfræðitákna með leirmótuninni. Heimavinnan Mikilvægt er að viðkomandi stjórni námi sínu. Leiðbein- andi þarf að gefa þeim lausan tauminn með það fyrir augum að námsmenn taki ábyrgð á námi sínu. Í lok námskeiðsins fá námsmenn öll gögn sem þarf til að vinna heimavinnu. Þörf fyrir stuðning fer minnkandi eftir því sem þessir nýju hæfileikar eru meira notaðir. Gerður er samningur við hvern og einn um hvernig ætlunin er að fylgja námskeiðinu eftir. Þjálfun stuðningsmanns Þjálfun stuðningsmanns er mikilvægur þáttur nám- skeiðsins. Stuðningsmaður getur verið fjölskyldu- meðlimur, stuðningskennari eða vinur sem fær kennslu í grundvallaratriðum meistrunarinnar og fær grundvallar- leiðbeiningar um hvernig hann getur best stutt viðkom- andi í heimavinnunni. Hreyfiþjálfun Líkams- og jafnvægisæfingar eru notaðar til að leysa samhæfingarvandamál eins og verkstol (dyspraxiu), eða vinstri-hægri rugling af völdum skynvillu. Með þessu móti er jafnvægisskyn eflt og hæfileikinn til að velja á milli athyglisbeitingar og skynvillu eftir Hólmfríður E. Guðmundsdóttir, Ron Davis leiðbeinandi, áður verkefnastjóri hjá Mími-símenntun. Ásmundur Hilmarsson, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Eitt af stærstu verkefnum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífs- ins (FA) á fyrsta starfsári hennar var undirbúningur tilraunaverkefnis í skipulagðri fræðslu fyrir almennt starfsfólk í verslunum. Aðdragandinn var sá að FA fékk erindi frá Samtökum verslunar og þjónustu (SVÞ) og forsvarsmönnum fræðslumála í stærstu verslana- fyrirtækjum landsins þar sem þess var óskað að FA beitti sér fyrir því að hafinn yrði undirbúningur að skipulagðri fræðslu fyrir þennan hóp í atvinnulífinu. FA tók jákvætt í erindið og tók að sér umsjón verkefnisins, vinnu að greiningu fræðsluþarfa og námsskrárgerð. S T A R F S T E N G T V E R S L U N A R F A G N Á M
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.