Gátt - 2004, Side 78
78
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Annars vegar var það viðhorf að í fullorðinsfræðslu sé
gott að taka aðeins fyrir einn námsþátt í senn, þ.e. að
námsþættir séu hliðskipaðir. Er það hagkvæmt fyrirkomu-
lag bæði fyrir framkvæmdaaðila og fyrir námsmanninn
sem getur þá tekið námið á eigin hraða og komið inn í þá
námsþætti sem honum hentar.
Hins vegar var það sjónarmið að tryggja eins og hægt
væri að yfirfærsla náms yfir í starf ætti sér stað. Það er
þekkt vandamál að þekking og færni, sem aflað er í skóla-
umhverfi, skilar sér ekki alltaf sem skyldi inn á vinnustaði.
Fyrir því geta verið margar ástæður og eru sumar þeirra
tengdar skipulagningu og hönnun náms.
Reynsla annarra þjóða af verslunarfagnámi, s.s. Dana,
hefur sýnt að til að styrkja slíka yfirfærslu er nauðsynlegt
að samþætta námsþætti sem mest og að skólanám og
vinnustaðanám myndi samhengi og heild (Aarkrog, 1997
og Magnussen, 1997). Þetta á við um starfsnám og starfs-
tengda þjálfun yfirleitt. Við raunverulegar aðstæður í
atvinnulífinu er starfsfólk að fást við ýmis verkefni sem
hvert um sig krefst margs konar þekkingar og færni, því
þurfa aðstæður í námi að vera sambærilegar. Það er
hægt að nálgast með raunverulegum starfstengdum
verkefnum og samþættingu en þá geta námsþættir síður
verið hliðskipaðir.
Niðurstaðan var sú að í tilraunaverkefninu yrði farin sú
leið að samþætta námsþætti sem mest og leggja áherslu
á samspil skóla- og vinnustaðanáms. Með því að tvinna
saman skóla og vinnu hafa starfsmenn möguleika á að
þjálfa jafnóðum það sem þeir læra í skólanum og þeir
geta tengt fræðilegt nám við hagnýta reynslu sem þeir
hafa aflað sér á vinnustað. Þessi ákvörðun leiðir af sér að
skipulag er óhefðbundið og jafnvel flóknara en gengur og
gerist og gerir því miklar kröfur til allra sem koma að
framkvæmdinni.
Námslotur
Skipting námsefnis á tímabil ræðst af viðfangsefnum og
starfsumhverfi verslunarfólks og eru þrír undirstöðuþættir
lagðir til grundvallar, þ.e. starfsmaðurinn, viðskiptavinur-
inn og vörurnar. Náminu er skipt í þrjár lotur sem hver um
sig hefur ákveðið grunnþema og mótast nálgun í náminu
af því. (Mynd 2).
Í fyrstu lotu er þemað starfsmaðurinn og fyrirtækið.
Áherslan er á uppbyggingu starfsmannsins, hlutverk
hans í fyrirtækinu og hlutverk fyrirtækisins í samfélaginu.
Í annarri lotu er þemað viðskiptavinurinn og þjónustu-
hlutverk starfsmannsins. Þar er lögð áhersla á ýmsa
þætti varðandi þjónustu, sölu og verklag í verslun.
Þriðja lotan hefur þemað vörurnar og þá er farið yfir allt
sem við kemur innkaupum, sölu, framsetningu vörunnar
og vöruþekkingu ásamt þeirri sérhæfingu sem starfs-
maðurinn hefur valið sér.
Hver lota inniheldur námsþætti af öllum færnisviðunum
fjórum en ávallt út frá þeirri áherslu sem þema lotunnar
Mynd 2. Verslunarfagnámið skiptist í þrjár lotur sem hver hefur sína áherslu.