Gátt - 2004, Page 79
79
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
býður (Mynd 3). Til að stuðla að samþættingu í náminu
eru í viku hverri þverfaglegir tímar í skólanámi auk þess
sem kennarar eru hvattir til samvinnu eins og kostur er.
Náminu lýkur með faglegu lokaverkefni sem er samvinnu-
verkefni starfsmannsins, vinnuveitandans og skólans.
Vinnustaðanám
Faglegar áherslur eru þær sömu hverju sinni í vinnu-
staðanámi og í skólanámi. Vinnustaðanámið fer þannig
fram að starfsmaður hefur aðgang að starfsþjálfa á vinnu-
stað sem leiðbeinir honum og aðstoðar við framkvæmd
og eftirfylgni þess hluta námsins. Sér til stuðnings og
leiðbeiningar hefur starfsþjálfinn gátlista þar sem fram
koma þeir verkþættir sem starfsmaður þarf að þjálfa og
sýna færni í. Skóla- og vinnustaðanám er samræmt þannig
að starfsmaður þjálfar jafnóðum í vinnunni þá þætti sem
eru til umfjöllunar í skólanáminu. Í þverfaglegum tímum í
skóla er einnig hugað að samþættingu skóla- og vinnu-
staðanáms með þeim hætti að starfsmenn gera grein
fyrir ýmsum þáttum úr vinnustaðanáminu, bera saman
reynslu sína og skiptast á þekkingu. Þannig fæst tenging
allan hringinn: vinnustaður - skóli - vinnustaður - skóli!
Aðferðir og námsmat
Kennsluaðferðir og leiðir miðast við að skapa sem raun-
verulegast starfsumhverfi og koma til móts við þarfir full-
orðinna nemenda. Starfsmenn fá tækifæri til að ráða
nokkru um eigin námsframvindu og setja sér eigin markmið
í samráði við kennara. Í því skyni útbúa þeir námssamn-
ing með eigin áherslum og velja sér sérsvið. Samvinna og
hópvinna er ríkulegur þáttur í kennsluaðferðum.
Aðferðir við námsmat eru í samræmi við kennsluaðferðir
og markmið námsins. Námsmat fer fram jafnóðum og
byggist á að meta færnina við að nýta nýja þekkingu og
færni í starfi. Notuð verða fjölbreytt tæki til námsmats og
einnig er seinasta vika í fyrstu og annarri lotu
uppskeruhátíðir sem eru hluti námsmats. Í lok þriðju lotu
er faglegt lokaverkefni sem er tækifæri starfsmannsins
að sýna færni sína og fagmennsku við raunverulegt og
hagnýtt viðfangsefni. Hlutur starfsþjálfa í námsmati er
einnig mikilvægur því að þeir fylgjast með og meta getu
starfsmannsins til að nýta færni í starfi.
Undirbúningur og gæðakröfur
Samkvæmt almennum samningsskilmálum FA, sem stýra
aðkomu FA að verkefnum sem þessu, skal framkvæmda-
aðili framfylgja formlegu gæðakerfi og gæðamati FA og
uppfylla skilgreindar kennslufræðilegar kröfur sem FA
þróar og/eða viðurkennir. Þeim sem taka að sér að kenna
eftir námsskrám útgefnum af FA ber að framfylgja þessu.
Til að styðja framkvæmdaaðila við að uppfylla gæðakröfur
stendur FA fyrir námskeiðum fyrir kennara og starfsþjálfa
auk þess sem ráðgjöf, eftirlit og gæðamat verður hlutverk
FA meðan á tilraunaverkefninu stendur.
Nú þegar hafa kennarar í Verzlunarskóla Íslands og aðrir
leiðbeinendur, sem koma að kennslu fyrsta hópsins, setið
kennslufræðinámskeið á vegum FA. Var þar lögð áhersla
á þarfir markhópsins, kennsluaðferðir og matsaðferðir.
Fyrir marga í þessum hópi er kennsla fullorðinna og
kennsla fyrir aðila í atvinnulífinu nýtt, ögrandi og spenn-
andi viðfangsefni. Kennarar voru hvattir til að hugsa þvert
á hefðbundin sérsvið sín, nota öll tækifæri til að tengja
námsþætti saman og nota raunhæf verkefni úr starfsum-
hverfi starfsmannanna. Sameiginlegt verkefni kennara-
hópsins er að styðja starfsmanninn í að verða vel undir-
búinn fyrir störf sín í versluninni, verða Verslunar-
fagmaður!
Í hverri námslotu eru námsþættir úr öllum fjórum færnisviðunum en
áherslan er út frá þema lotunnar.
Mynd 3