Gátt - 2014, Qupperneq 24
24
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
skeiði í nóvember fyrir ráðgjafa og leiðbeinendur í Breiðholti.
Markmiðið er að gera Fab Lab að vettvangi fyrir fræðslu og
skapandi tómstundastarf.
Íslenska og móttaka innflytjenda
Verið er að þróa hugmynd um móttökuviðtal við innflytj-
endur sem flust hafa til Íslands á síðustu fimm árum og búa
í Breiðholti. Hugmyndin varð til í samstarfi við verkefnið
Menntun núna í Norðvesturkjördæmi og í undirbúningi að
tveimur ráðstefnum sem verkefnin stóðu saman að undir yfir-
skriftinni „Íslenska og fjölmenningarsamfélagið“ á Ísafirði 8.
október og í Breiðholti 10. október í samstarfi við Fjölmenn-
ingarsetrið.
Á ráðstefnunni í Breiðholti var sjónunum beint að mót-
töku innflytjenda á meðan ráðstefna á Ísafirði fjallaði um
„best practices“ í íslenskukennslu. Ákveðið var vorið 2014
að vinna sameiginlega heimasíðu fyrir verkefnin sem opnuð
var ráðstefnunum á slóðinni www.menntun-nuna.is en áður
höfðu verkefnin nýtt undirsíður hjá Reykjavíkurborg og
Háskólanum á Bifröst.
Í erindi sem Phil Woods, fulltrúi verkefnisins fjölmenn-
ingarborgir hjá Evrópuráðinu, flutti á málþingi um fjölmenn-
ingu, sem haldið var í tengslum við umsókn Reykjavíkur-
borgar um aðild að verkefninu, kom fram að lykilatriði væri
að ná til fólks með upplýsingar og þjónustu á fyrstu 6–10
vikunum eftir flutning til landsins. (Protopapa, 2014)
Elsa Arnardóttir, fyrrverandi forstöðumaður Fjölmenn-
ingarsetursins, hefur leitt vinnu við þróun móttökuviðtals/
áætlunar fyrir innflytjendur fyrir verkefnin Menntun núna.
Leitað hefur verið eftir samstarfi við innanríkis- og félags-
málaráðuneytið vegna verkefnisins auk lykilaðila á borð við
Mannréttindaskrifstofu Íslands og Reykjavíkurborgar, Inn-
flytjendaráðs, Fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar og Fjöl-
menningarseturs.
Hugmynd að tilraunaverkefni um móttökuviðtal (Arnar-
dóttir, 2014)
Kannað verður hvort hægt er að bjóða íbúum Breiðholts
og Norðvesturkjördæmis af erlendum uppruna sem hafa flust
til landsins undanfarin fimm ár upp á móttökuviðtal. Jafn-
framt er lagt til að öllum þeim sem flytjast utan EES-svæðis-
ins verði boðið upp á viðtal en með því fengist betri reynsla
af þróunarverkefninu og það yrði ekki bundið við eitt hverfi
eða landshluta. Til að taka viðtölin er ætlunin að þjálfa fólk
sem býr yfir menningarfærni og tungumálakunnáttu. Viðtölin
væru skráð í gagnagrunn þar sem fyllsta trúnaðar er gætt
og upplýsingar eru ekki persónugreinanlegar. Í viðtalinu yrði
farið yfir helstu réttindi og skyldur í íslenskusamfélagi svo
sem:
• hvar hægt sé að nálgast upplýsingar á ensku og fleiri
tungumálum,
• upplýsingar um íslenskunámskeið og hvar sé hægt að
leita eftir ráðgjöf,
• kynnt fyrir viðkomandi í hvaða tilvikum hann getur
beðið um túlkaþjónustu,
• bent á upplýsingar um félög innflytjenda og móður-
málskennslu.
Farið yrði yfir helstu atriði varðandi flutning á milli landa og
skoðað hvort viðkomandi/börn hans eða maki séu öll með
löglega búsetu og hverjar eru lagalegar forsendur dvalar-
innar svo sem hvenær þarf að vera búið að endurnýja leyfi og
hverjar séu helstu forsendur leyfisins og endurnýjunar. Farið
verður yfir með viðkomandi hvort búið sé að fá viðtal í leik-
skóla/grunnskóla/framhaldsskóla vegna skólagöngu barns.
Í viðtalinu verður viðkomandi einnig spurður hvort hann
vilji ekki skrá tölvupóstfang og tungumálakunnáttu svo auð-
veldara sé fyrir sveitarfélög og Fjölmenningarsetur að miðla
upplýsingum með markvissum hætti til hans. Skoðað verður
hvort viðkomandi sé með menntun frá heimalandi og hvort
hann þurfi aðstoð við að fá menntun metna. Í kjölfarið yrði
leitast við að veita innflytjanda þá þjónustu sem hann þarf á
að halda í samstarfi við fræðsluaðila og ráðgefandi stofnanir.
Verið er að áætla kostnað verkefnisins og er horft er til
þess að vera í samstarfi við Mannréttindaskrifstofu Íslands
varðandi utanumhald með verkefninu, ábyrgð og umsjón
með þeim gögnum og upplýsingum sem safnast í viðtöl-
unum. Unnið verður með Mími-símenntun, Fjölmenningar-
setri og Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur að því að finna
og þjálfa samfélagstúlka og aðra ráðgjafa í að taka viðtölin
og skrá þau.
þ e K K I N G A R y F I R F Æ R S L A o G
F R A M T Í Ð A R S ý N
Samningi um tilraunaverkefnið Menntun núna í Breiðholti
lýkur í ágústlok 2015. Það er því skammur tími til stefnu, bæði
til að draga lærdóm af þeim tilraunum sem eru í framkvæmd
sem og að móta stefnu til framtíðar um hvernig hægt er
halda áfram með verkefnið í Breiðholti og yfirfæra aðferðir og
reynslu verkefnisins yfir á önnur hverfi og stærri sveitarfélög.