Gátt - 2014, Blaðsíða 69
69
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Resource Systems Group í Kanada (www.hrsg.ca), sem eru
höfundur að þeim hæfnigrunni sem FA notar, til ráðgjafar
um samræmingu.
Niðurstaða þessarar undirbúningsvinnu, þ.e. drög að
almennri starfshæfni sem þegar var farið að nota við hæfni-
greiningar hjá FA, var lögð fyrir ráðgjafahópinn. Hópurinn fór
gaumgæfilega yfir innihaldið og gerði viðeigandi breytingar
og skilaði niðurstöðu sem sjá má á mynd 1.
Ákveðið var að skilgreina einnig grunnleikni (e. basic
skills) sem samanstendur af læsi, ritun, talnaskilningi og
upplýsingatækni á sama hátt, í þeim tilgangi að nota í raun-
færnimatinu. Grunnleikni er undirstaða annarrar færniupp-
byggingar og forsenda fyrir virkri þátttöku í atvinnulífinu. Í
þeim hluta verkefnisins var einnig stuðst við gögn frá VOX
(e.d.) og efni úr Evrópu verkefni sem kallast Lit.voc (e.d.). Þar
hafa verið teknar saman greiningar á hæfniþáttum fjölmargra
starfa, unnar í mismunandi löndum. Samantekt úr þessari
vinnu var einnig lögð undir ráðgjafahópinn til endurskoðunar.
H Æ F N I V I Ð M I Ð F y R I R A L M e N N A
S T A R F S H Æ F N I
Í niðurstöðu skilgreiningar á almennri starfshæfni segir að
um sé að ræða hæfni sem nýtist bæði á vinnustað og í sam-
félaginu en á mismunandi hátt eftir aðstæðum og störfum.
Einnig segir þar að með almennri starfshæfni er ekki aðeins
átt við þá hæfni að geta verið á vinnumarkaði heldur einnig
hvernig einstaklingar geti aukið starfshæfni sína (sjá mynd 1).
Samstaða var um að nota þessa 11 hæfniþætti úr hæfni-
grunni FA sem lýsingu á almennri starfshæfni og að auki
fjóra þætti sem lýsa grunnleikni. Hver og einn hæfniþáttur er
síðan skilgreindur nánar eins og sjá má dæmi um á mynd 2.
Þeir hæfniþættir sem hér er vísað til eru úr hæfnigrunni
FA en þeir eru þrepaskiptir í samræmi við íslenskan viðmiða-
ramma um menntun. Íslenski viðmiðaramminn er með 7
þrep þannig að fyrsta þrepið samsvarar tveim fyrstu þrepum
evrópska rammans EQF sem hefur 8 þrep. Í vinnu hópsins
kom fram mikil þörf fyrir því að skipta fyrsta þrepinu í tvennt;
1a og 1b til þess að innan viðmiðanna rúmist fleiri tegundir
af störfum sem fela í sér meiri fjölbreytileika/breidd í færni
s.s. fyrir þá sem eru að hefja störf á vinnumarkaði eða þá
sem hafa skerta starfsgetu og/eða fatlaða einstaklinga.
Einnig getur það verið meiri hvatning fyrir einstaklinginn til
að færast á milli þrepa þar sem þrepin eru „þrengri“ og því
meiri möguleikar að færast fram á við. Miklar umræður urðu
A L M e N N S T A R F S H Æ F N I o G G R U N N L e I K N I
Hér er átt við þá hæfni (leikni, viðhorf og breytni) sem einstaklingur þarf
að búa yfir eða tileinka sér til þess að taka á virkan hátt þátt í sam-
félaginu, vera á vinnumarkaði, þróast í starfi og geta tekið á sig meira
krefjandi störf.
Almenna starfshæfni má flokka í persónulega hæfni og samstarfs-
hæfni. Hún nýtist bæði á vinnustað og í samfélaginu en á mismunandi
hátt eftir aðstæðum og störfum. Almenn starfshæfni byggir á tiltekinni
grunnleikni.
Persónuleg hæfni er drifkrafturinn til þroska og vaxtar. Með því að
efla persónulega hæfni auka einstaklingar möguleika sína á framgangi
í starfi.
Samstarfshæfni er mikilvæg til að geta lagt sitt af mörkum á
vinnustað og í samfélaginu. Þeir sem hafa góða samstarfshæfni ná meiri
árangri í viðfangsefnum sínum.
Grunnleikni er undirstaða frekari hæfniuppbyggingar og forsenda
fyrir virkri þátttöku í atvinnulífinu. Að búa yfir nægjanlegri grunnleikni er
afgerandi forsenda fyrir öllu öðru námi og þjálfun í starfi.
• Persónuleg hæfni. Viðhorf, leikni og breytni sem eykur mögu-
leika einstaklings fyrir vöxt og þroska.
• Aðlögunarhæfni
• Ábyrg nýting
• Mat og úrlausnir
• Starfsþróun og færniefling
• Söfnun og úrvinnsla upplýsinga
• Vinnusiðferði og gildi
• Jafnréttisvitund
• Öryggisvitund
• Samstarfshæfni. Það sem þarf til að geta lagt sitt af mörkum
fyrir heildina til að árangur náist.
• Árangursrík samskipti
• Samvinna
• Skipulag og áætlanir
• Grunnleikni. Leikni sem er undirstaða frekari hæfniuppbyggingar.
• Lestur/læsi
• Ritun
• Talnaskilningur
• Upplýsingatækni
Mynd 1 – Niðurstaða hóps sem vann að skilgreiningu
viðmiða fyrir almenna starfshæfni (yfirlit).