Gátt - 2014, Blaðsíða 50
50
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
menntaðs starfsfólks af ýmsu tagi og stjórnenda muni fjölga
jafnt og þétt yfir þetta 10 ára tímabil sem spáin nær til, en
talsverð fækkun varð í þessum starfsstéttum í kjölfar hruns-
ins. Að hluta til er því að ganga til baka sú mikla fækkun
sem varð til dæmis í hópi millistjórnenda fljótlega í kjölfar
hrunsins og síðar ýmissa sem gegndu stjórnunartengdum
fulltrúa- og ritarastörfum (sérmenntað starfsfólk). Að nokkru
leyti virðist þó um ákveðna breytingu á uppbyggingu vinnu-
markaðarins að ræða, þar sem stjórnun af ýmsu tagi er að
verða mikilvægari og fjölþættari og störfum sem skilgreind
eru sem stjórnunarstörf fer því fjölgandi.
Sama gildir um önnur sérfræðistörf og störf sérmennt-
aðra, að þar er að hluta til að ganga til baka fækkun frá
hruni, svo sem í störfum tengdum fjármálaþjónustu, ýmsum
tækni- og tölvustörfum við hljóð- og myndtækni, auk sér-
hæfðra starfa í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Gert er ráð
fyrir að störfum þjónustu- og verslunarfólks muni fjölga
áfram á næstu tveimur til þremur árum vegna vaxtar í ferða-
þjónustu og að einhver fjölgun verði áfram út spátímann,
meðal annars vegna aukinnar þarfar fyrir störf við umönnun
og aðra félagsþjónustu. Störfum iðnaðarmanna mun fjölga
að einhverju marki fram undir 2020, en fjöldi annarra starfa
mun lítið breytast og má raunar búast við áframhaldandi
fækkun starfa skrifstofufólks sem og sjómanna og bænda.
Vinnumarkaðurinn er mjög kynskiptur hvað varðar
atvinnugreinar og starfsstéttir og hefur það sett mark sitt á
þróun atvinnuleysis og stöðu kynja á vinnumarkaði. Sá upp-
gangur sem verið hefur í ferðaþjónustu nú síðustu misseri,
og gert er ráð fyrir áfram næstu árin, skapar störf sem nýtast
bæði körlum og konum. Vaxandi umsvif í byggingariðnaði
næstu misseri skapa á hinn bóginn fyrst og fremst störf fyrir
karla. Aðhald í opinberum rekstri veldur því að minna verður
um störf fyrir konur, sem eru fjölmennar bæði í mennta- og
heilbrigðiskerfinu. Sú fjölgun stjórnenda sem áður hefur verið
rakin er heldur meira áberandi meðal karla og gildir það
einnig um þá fjölgun sem fyrirsjáanleg er meðal sérhæfðs
starfsfólks og þá einkum tengt tæknistörfum af ýmsu tagi.
Konum hefur hins vegar fjölgað nokkuð í hópi sérfræð-
inga en körlum ekki svo teljandi sé. Jafnframt varð bakslagið
minna meðal kvenna en karla með sérfræðimenntun við
hrunið. Í erlendum rannsóknum hefur komið fram að svo virð-
ist sem vinnumarkaðurinn sé að skauthverfast að einhverju
marki. Með því er átt við að störfum fjölgi sem annars vegar
krefjast sérfræðimenntunar og sérhæfingar af ýmsu tagi, auk
stjórnunarkunnáttu og hins vegar störfum fyrir ófaglærða.
Störfum fyrir fólk með menntun á framhaldsskólastigi virðist
hinsvegar fækka. Virðist þetta einkum eiga við um konur en
síður um karla, sem áfram eru fjölmennir í störfum iðnaðar-
manna og öðrum störfum sem krefjast menntunar á fram-
haldsskólastigi, s.s. störf lögreglu- og slökkviliðsmanna.
Gert er ráð fyrir því í líkani Cedefop að þróunin verði heldur í
þessa átt, það er að fjölgun kvennastarfa verði einkum á sér-
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
Framleiðsla/iðnaður
Verslun og þjónusta
Opinber þjónusta
1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009 2011 2013 2015 2017 2019 2021 2023 2025
Mynd 2 – Fjöldi starfa eftir atvinnugreinum, þróun og horfur til 2025.