Gátt - 2014, Blaðsíða 100
100
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
H V e R e R Á V I N N I N G U R e Q M - V o T T -
U N A R ?
Fyrir fræðsluaðila á vettvangi framhaldsfræðslunnar á Íslandi
getur EQM-vottun verið liður í því að fá viðurkenningu
mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem viðurkenndur
fræðsluaðili, sbr. lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og
reglugerð um framhaldsfræðslu nr. 1163/2011.
Með EQM-vottuninni er verið að mæta þörfum fyrir
aukið gegnsæi og gæðavottun í símenntun og fullorðins-
fræðslu. Hún mun gagnast öllum þeim sem skipuleggja,
bjóða upp á, meta og nota símenntun og fullorðinsfræðslu.
Þar á meðal vinnuveitendum, fræðslusjóðum stéttarfélaga,
fræðsluaðilum og síðast en ekki síst námsmönnunum sjálfum
sem sækjast eftir því að þjónustan uppfylli þeirra eigin kröfur
og væntingar um gæði.
Fræðsluaðili, sem hlotið hefur EQM-vottun, fær leyfi til
að nota EQM-gæðamerkið í efni sem dreift er til að vekja
athygli á þeirri starfsemi sem lýst er á vottunarskírteini.
Ávinningur gæðavottunar er þó fyrst og fremst aukin
gæðavitund sem eflir fræðslustarfsemina. Þess vegna er
öllum fræðsluaðilum heimilt að nýta EQM-verkfærin til sjálfs-
mats og eflingu gæða. Óski fræðsluaðili eftir EQM-vottun
þarf að sækja um það til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
á sérstöku eyðublaði.
Listi yfir vottaða fræðsluaðila
Fræðsluaðili Dagsetning vottunar
IÐAN fræðslusetur 21.06.2012
Þekkingarnet Þingeyinga 25.06.2012
Starfsmennt – fræðslusetur 22.10.2012
Framvegis – miðstöð símenntunar 23.11.2012
Farskólinn – miðstöð símenntunar
á Norðurlandi vestra 26.11.2012
Mímir-símenntun 13.12.2012
SÍMEY – Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar 14.01.2013
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum 16.01.2013
Viska – fræðslu- og símenntunarmiðstöð
Vestmannaeyja 16.01.2013
Austurbrú 16.01.2013
Fræðslunet Suðurlands 16.01.2013
Fræðslumiðstöð Vestfjarða 18.01.2013
Símenntunarmiðstöðin Vesturlandi 22.01.2013
PROMENNT 19.09. 2013
Hringsjá – náms- og starfsendurhæfing 05.06.2014
Fræðsludeild Landsbankans 08.07.2014
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er vottunaraðili EQM á Íslandi. EQM stendur fyrir European
Quality Mark eða Evrópska gæðamerkið og er gegnsætt matsferli fyrir fræðsluaðila til að
meta starfshætti sína út frá viðurkenndum gæðaviðmiðum.
EQM er hannað til að mæta síauknum kröfum um gagnsemi náms og sameiginleg gæða-
viðmið fyrir fræðsluaðila utan hins formlega skólakerfis. EQM tekur mið af:
• gæðum þjónustunnar sem fræðsluaðili veitir,
• innri gæðastjórnun og verklagsreglum fræðsluaðila,
• hvernig núverandi starfshættir samræmast viðurkenndum gæðaviðmiðum.
EQM byggist á sjálfsmati sem er yfirfarið af EQM viðurkenndum úttektaraðila sem
kemur einnig með ábendingar um gæðamál og umbætur meðan á úttektarferlinu stendur.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur gert samning við vottunarstofuna British Standards Institution á Íslandi (BSI)
um að vera úttektaraðili EQM.
ritstjórN
e V R ó P S K A G Æ Ð A M e R K I Ð – e Q M V o T T A Ð I R
F R Æ Ð S L U A Ð I L A R