Gátt - 2014, Blaðsíða 49
49
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
og smátt í hópi fólks með grunnmenntun á vinnumarkaði
og er gert ráð fyrir að sá hópur verði kominn undir 60.000
árið 2025. Fjölgun háskólamenntaðra mun verða talsvert
meira áberandi meðal kvenna en karla samkvæmt þessu
spálíkani og mun konum fækka í hópi þeirra sem hafa fram-
haldsmenntun. Körlum með framhaldsmenntun mun á hinn
bóginn fjölga nokkuð auk þess sem þeim kemur líka til með
að fjölga talsvert í hópi háskólamenntaðra.
S T Ö R F Á V I N N U M A R K A Ð I
Eftir fækkun starfa um nálægt 10.000 í hruninu og litlar
breytingar þegar á heildina er litið næstu ár á eftir, fjölgaði
störfum á vinnumarkaði um nærri 2.000 á árinu 2012 (1,1%
fjölgun starfa) og nærri 6.000 á árinu 2013 (3,4% fjölgun
starfa). Fjölgun starfa þessi ár er nánast sú sama og hag-
vaxtarprósentan og hefur störfum því fjölgað meira en búast
hefði mátt við í ljósi þess að störfum fjölgar alla jafna um 0,3-
0,6% fyrir hvert stig hagvaxtar. Svo virðist því sem hagvöxtur
síðustu tveggja ára, sem byggist mikið til á vexti í ferðaþjón-
ustu, sé mannaflsfrekari en sá hagvöxtur sem verið hefur á
Vesturlöndum síðustu áratugi. Tölur um fjölgun starfa fyrstu
þrjá ársfjórðunga þessa árs benda til að störfum muni fjölga
um hátt í 4.000 á árinu, sem gerir fjölgun um nálægt 2,2%,
en spáð er að hagvöxtur verði um eða yfir 3%, sem gerir
um 0,7% fjölgun starfa fyrir hvert prósentustig hagvaxtar.
Þar sem spáð er þokkalegum hagvexti næstu ár er gert ráð
fyrir að störfum muni fjölga nokkuð umfram fjölgun vinnuafls
næstu tvö ár og að atvinnuleysi muni að sama skapi minnka
smám saman á næstu tveimur til þremur árum. Þaðan í frá
er gert ráð fyrir að fjölgun starfa verði í takt við fjölgun á
vinnumarkaði og atvinnuleysi haldist því svipað, þó það ráð-
ist að sjálfsögðu af efnahagssveiflum hvernig þróunin verður
frá ári til árs. Í töflu 1 eru teknar saman helstu tölur um stöðu
á vinnumarkaði ásamt tölum um mannfjölda á árunum 2013
og 2014 og spá um þróunina næstu 10 ár.
Uppbygging atvinnugreina og tegund starfa hefur breyst
umtalsvert á síðustu áratugum á Íslandi líkt og annars staðar
um hinn vestræna heim. Koma þar til þættir eins og tækni-
þróun, aukin alþjóðasamskipti og minni hindranir í flæði vöru
og þjónustu um heiminn, aukin áhersla á afþreyingu, ferða-
lög og tengda þjónustu og aukin öldrunarþjónusta svo eitt-
hvað sé nefnt. Störfum við framleiðslugreinar og iðnað hefur
heldur farið fækkandi en mikil fjölgun hefur orðið í störfum
tengdum verslun og þjónustu ýmis konar og eru greinar eins
og upplýsingatækni, fjármálaþjónusta, ferðatengd þjónusta
og ýmsir þættir opinberrar þjónustu áberandi.
Ef stuðst er við spálíkan Cedefop má gera ráð fyrir að
þróunin haldi áfram með svipuðum hætti næstu tíu árin og
ný störf verði að mestu leyti til í verslun og ýmsum þjónustu-
greinum, einkum í einkageira framanaf. Er þar um að ræða
áframhaldandi hraða fjölgun starfa sem tengjast ferðaþjón-
ustu næstu tvö til þrjú árin en einnig nokkra fjölgun í flestum
öðrum greinum þjónustu og verslunar. Einnig má gera ráð
fyrir fjölgun starfa í opinberri þjónustu og þá frekar á seinni
hluta þess tímabils sem horft er til. Er þar gengið út frá því að
staða ríkis og sveitarfélaga muni styrkjast þegar líður á spá-
tímann á sama tíma og þörf fyrir aukna félagslega þjónustu
muni aukast, samfara fjölgun aldraðra, og að hið opinbera
geti veitt meiri fjármunum í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Störfum í frumframleiðslu, iðnaði og byggingariðnaði kemur
til með að fjölga nokkuð afgerandi á næstu tveimur til
þremur árum samfara auknum umsvifum í byggingariðnaði
fyrst og fremst. Hægja mun smám saman á fjölguninni fram
til 2020 og mun fjöldinn svo standa nokkuð í stað eftir það.
Þessi þróun er sýnd á mynd 2.
Þetta endurspeglast jafnframt í tegundum starfa, sjá
mynd 3. Þannig er gert ráð fyrir að störfum sérfræðinga, sér-
Tafla 1 – Spá um þróun á vinnumarkaði 2015–2025.
Mannfjöldi
Mannfj.
16–69 ára Vinnuafl Starfandi
Fjölgun starfa
pr. ár Atvinnulausir Atvinnuleysi
2013 323.764 223.968 185.000 175.000 5.800 10.000 5,4%
2014 327.440 226.525 187.500 178.800 3.800 8.700 4,6%
2015 331.046 228.818 189.300 182.500 3.700 6.800 3,6%
2020 349.209 239.346 198.000 191.900 1.880 6.100 3,1%
2025 364.568 248.268 204.900 198.700 1.360 6.200 3,0%