Gátt - 2014, Blaðsíða 48
48
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
F j Ö L d I Á V I N N U M A R K A Ð I o G
M e N N T U N
Spá um fjölda á vinnumarkaði byggist að stærstu leyti á spá
um þróun mannfjölda, auk spár um atvinnuþátttöku, en gert
er ráð fyrir að hún haldist að mestu óbreytt frá því sem nú
er, enda sveiflaðist hún ekki mikið þegar á heildina er litið
síðustu 10 árin þrátt fyrir mikla þenslu og djúpa kreppu í kjöl-
farið. Sveiflur í atvinnuþátttöku voru þó talsverðar hjá ein-
stökum undirhópum, einkum ungu fólki, í takt við efnahags-
sveiflur en gert er ráð fyrir að slíkt jafnist út yfir spátímann.
Í mannfjöldaspá Hagstofunnar frá miðju ári 2013 er gert
ráð fyrir að mannfjöldi 1. janúar 2026 verði um 361.000
(miðspá), en geti legið á bilinu 354 þús. (lágspá) upp í 370
þús. (háspá). Þróun búferlaflutninga bendir til að fleiri hafi
verið að flytjast til landsins og færri á brott en spár hafa gert
ráð fyrir. Hagvaxtarspár benda til að svo verði áfram næstu
ár. Hér er því gert ráð fyrir að mannfjöldi muni liggja á milli
mið- og háspár Hagstofunnar og meðalmannfjöldi á árinu
2025 verði um 365 þúsund manns og fjölgun verði nokkuð
línuleg og jöfn sem nemur um 3.350 manns á ári, eða um
1% fjölgun árlega.
Fólki á eftirlaunaaldri mun fjölga hlutfallslega meira á
komandi áratugum heldur en fólki á vinnualdri. Fólki á vinnu-
markaði mun því fjölga heldur hægar en þjóðinni í heild, eða
um nálægt 0,8% á ári til ársins 2025, sem svarar til um 1.580
manns á ári. Gert er ráð fyrir að fjölgunin verði heldur örari
næstu fjögur til fimm árin en minni þegar líður á spátímann.
Miklar breytingar hafa orðið á menntunarstigi fólks á
vinnumarkaði síðustu áratugi. Árið 1991 voru á vinnumark-
aði um 15.000 háskólamenntaðir, eða um 10% af vinnu-
aflinu. Árið 2013 voru þeir um 58.000, eða um 32% vinnu-
aflsins. Fjöldi fólks með grunnmenntun, iðnmenntun og aðra
framhaldsmenntun hefur staðið að miklu leyti í stað þessi
rúmlega 20 ár frá 1991 til 2013 og hefur hlutfallið því farið
lækkandi samfara fjölgun á vinnumarkaði og hækkandi hlut-
falli háskólamenntaðra.
Spurningin er þá hvernig þróunin muni verða næstu árin
hvað þetta varðar. Í spálíkani evrópsku starfsmenntastofn-
unarinnar, Cedefop, er horft til margra þátta en í grunninn er
þróunin síðustu 10–15 ár framreiknuð og er þá jafnframt tekið
tillit til lýðfræðilegra þátta og fleiri upplýsinga til að reyna
að undirbyggja spárnar betur. Samkvæmt þessum gögnum
Cedefop er gert ráð fyrir að hlutfall háskólamenntaðra á
vinnumarkaði vaxi jafnt og þétt líkt og undanfarna áratugi.
Miðað við spá Cedefop um hlutfallslega skiptingu og byggt
á mannfjöldaspánni sem reifuð var hér ofar má því gera ráð
fyrir að háskólamenntaðir á vinnumarkaði verði um 75.000
árið 2025, eða um 37% vinnuaflsins. Þetta má sjá á mynd 1.
Gert er ráð fyrir að fólki með menntun á framhaldsskólastigi
muni einnig fjölga lítið eitt, einkum framan af á spátímanum
og verði um 71.000 árið 2025. Hins vegar mun fækka smátt
80.000
70.000
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
Grunnmenntun
Starfs- og framhaldsmenntun
Háskólamenntun
1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009 2011 2013 2015 2017 2019 2021 2023 2025
Mynd 1 – Fjöldi fólks á vinnumarkaði á Íslandi eftir menntun. þróun frá 1991 og spá um þróun til 2025.