Gátt - 2014, Blaðsíða 35
35
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
að iðnmenntun veiti nokkuð greiðan aðgang að störfum í
greininni, að minnsta kosti á uppgangstímum.
Rúmlega helmingur þeirra sem tóku þátt í könnunni var
að vinna á Íslandi þegar hún var gerð, sjá mynd 6. Ekki liggur
fyrir hvað þessi hópur hafði verið lengi á atvinnuleysisskrá né
hvort tengsl séu á milli þeirra sem hafa verið lengi atvinnu-
lausir og þeirra sem voru án atvinnu þegar þeir svöruðu
könnuninni. Allir sem svöruðu höfðu þó verið án atvinnu í sex
mánuði eða lengur á tilteknu tímabili. Hærra hlutfall karla en
kvenna voru að vinna, eða 60,6% karla á móti 48% kvenna.
Áhuga vekur að 71,8% þeirra sem hafa unnið við sína starfs-
grein á Íslandi voru að vinna þegar könnunin var gerð, ýmist
í fullu starfi eða hlutastarfi, á móti 55,5% þeirra sem höfðu
aldrei unnið starf tengt sinni sérgrein á Íslandi.
T U N G U M Á L A N Á M o G T U N G U -
M Á L A K U N N Á T T A
Hluti af rannsókninni samanstóð af spurningum sem snéru
að íslenskukunnáttu og áhuga á tungumálanámskeiði. Þátt-
takendur voru beðnir að meta sjálfir kunnáttu sína í íslensku.
Spurt var: Hver er kunnátta þín í íslensku? Valmöguleikar og
svarhlutfall skiptust þannig:
a) Mjög góð kunnátta, alls 1,6%
b) Góð kunnátta, alls 10,1%
c) Ég get átt samskipti í hversdagslegum aðstæðum, alls
37,2%
d) Ég get sagt nokkur orð, alls 47%
e) Ég kann ekkert í tungumálinu, alls 3,9%
Töluvert hærra hlutfall kvenna en karla telja sig geta átt
samskipti í hversdagslegum aðstæðum, eða 40,5% kvenna
á móti 33,9% karla. Alls 55,1% karla telja sig einungis geta
sagt nokkur orð. Menntun og aldur þátttakenda virðist skipta
hér máli en yngri þátttakendur og þeir sem hafa háskóla-
menntun meta getu sína á hærra stigi. Það ber að nefna að
þetta var sjálfsmat og að fólk hefur gjarnan tilhneigingu til
að vanmeta kunnáttu sína og færni í tungumálum. En hvað
sem því líður er stór hluti þátttakenda sem metur kunnáttu
sína í íslensku þannig að þeir geti einungis sagt nokkur orð.
Það er bagalegt og hamlar mjög framgangi fólks á vinnu-
markaði að geta ekki átt í daglegum samskiptum án mikilla
vandkvæða.
Síðasti hluti könnunarinnar var spurning sem snéri
að áhuga þátttakenda á því að stunda tungumálanám og
starfstengt nám. Meirihluti fólks sem vildi taka þátt í tungu-
málanámskeiði vildi einnig stunda starfstengt nám, eða
alls 80,7%, en þeir sem voru óákveðnir hvað varðar tungu-
málanám voru það einnig hvað varðar starfstengt nám, eða
alls 58,3%. Ef borin eru saman atvinnuþátttaka og vilji til að
stunda nám kemur í ljós mikil fylgni á milli þeirra sem vinna
núna (fullt starf eða hlutastarf) og hafa unnið sumarið áður
og þess að vilja taka þátt í námi, en um 80% allra þeirra hafa
áhuga á námi. Þeir sem voru ekki að vinna þegar könnunin
var gerð hafa minnstan áhuga á að taka þátt í námi (68,4%)
eða eru óákveðnir (22,8%). Þetta sýnir skýrt að virkni á
vinnumarkaði þýðir meiri virkni á öðrum sviðum lífsins.
A Ð L o K U M
Það er von okkar höfunda að niðurstöður þessarar könnunar
verði vísir að því að starfsmenntun pólskra innflytjenda verði
bæði sýnilegri í umræðu um menntunarstig íbúa landsins
og að hún verði metin betur að verðleikum en verið hefur
á íslenskum vinnumarkaði. Einnig ættu bæði yfirgripsmikil
reynsla og tegundir af starfsmenntun þátttakenda að geta
orðið uppspretta nýrra leiða í raunfærnimati. Ljóst er að
mikill meirihluti þátttakenda er með menntun á framhalds-
eða háskólastigi en hefur ekki haft tækifæri til að nýta hana
í starfi hér á landi.
Greina má mikinn áhuga hjá þátttakendum á því að
fá tækifæri til starfstengds náms á Íslandi og að flétta það
saman við þjálfun í íslensku. Þessar niðurstöður haldast í
hendur við þá þróun í Evrópu og á Norðurlöndum að tengja
saman starfstengt nám og tungumálaþjálfun fyrir innflytj-
endur. Staðreyndin er nefnilega sú að það er óraunhæft að
ætlast til þess að innflytjendur „klári“ að læra íslensku áður
54.3%
5.0%
1.2%
5.4%
30.6%
3.5%
Já, í fullu starfi
Já, í hlutastarfi
Já, ég rek mitt
eigið fyrirtæki
Nei, en ég vann
síðastliðið sumar
Nei
Nei, ég bý ekki
lengur á Íslandi
Mynd 6 – ertu að vinna núna á Íslandi?