Gátt - 2014, Blaðsíða 102
102
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
um að ræða námsskána Lyfjagerðaskólinn sem var unnin
á vegum Framvegis, miðstöð símenntunar í samstarfi við
Actavis. Námsskráin er ætluð þeim sem ekki hafa lokið
framhaldsskóla og starfa í lyfjaiðnaðinum. Hins vegar er það
námsskráin Fræðsla í formi og lit sem var unnin á vegum
Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar. Námsskráin er ætluð
þeim sem hafa ekki lokið framhaldsskóla og hafa áhuga á
skapandi starfi, hugmyndavinnu, myndgerð, framsetningu
og myndlistarsögu. Allar þessar námsskrár eru skrifaðar í
samræmi við hugmyndir um þrepaskipt nám með áherslu á
hæfniviðmið.
Auk framangreindra námsskráa hafa sjö aðrar námsskrár
fengið endurmat til tveggja ára: Starfsnám stuðningsfull-
trúa, grunnnám og Starfsnám stuðningsfulltrúa, framhald.
Námið er ætlað starfsfólki í þjónustu við fatlaða, aldraða
og sjúka. Landnemaskóli II námið er ætlað innflytjendum
sem hafa lokið Landnemaskóla. Skrifstofuskólinn ætlaður
þeim sem hafa stutta formlega skólagöngu og vilja vinna
við almenn skrifstofustörf. Sölu-, markaðs- og rekstrarnám
er ætlað þeim sem hafa stutta formlega skólagöngu og vilja
vinna við sölu- og markaðsstörf eða stofna til eigin reksturs.
Menntastoðir lýsa námi í almennum bóklegum greinum og er
ætlað þeim sem hafa ekki lokið framhaldsskóla. Opin smiðja
er sniðin fyrir símenntunarmiðstöðvar til að skrifa námslýs-
ingar fyrir smiðju þar sem er lögð áhersla á verklag sem á við
um undirbúning og framkvæmd verks sem er starf eða hluti
starfs á vinnumarkaði og ætlað þeim sem eru 20 ára eða
eldri, eru á vinnumarkaði og hafa ekki lokið framhaldsskóla.
Á tímabilinu var lokið við að skrifa námslýsingar samkvæmt
námsskránni Opin smiðja fyrir listasmiðjur, um er að ræða
tvær smiðjur sem heita Myndlistasmiðja – sjónræn miðlun,
teikning og Myndlistarsmiðja – sjónræn miðlun, málun. Í
allt hafa verið skrifaðar 14 námslýsingar samkvæmt Opinni
smiðju. Áfram var unnið að þróun á framsetningu námsskráa
útfrá þrepaskiptingu náms og eru námsskrárnar Skrifstofu-
skóli, Sölu-, markaðs- og rekstrarnám, Menntastoðir og Opin
smiðja skrifaðar í samræmi við þær hugmyndir, með áherslu
á hæfniviðmið.
Á árinu var unnið að útfærslu á námsskrá í ferðaþjón-
ustu og fyrir verslunarfulltrúa hjá Austurbrú og í samstarfi
við Mími-símenntun var einnig unnið að útfærslu á náms-
skrá fyrir verslunarfulltrúa með aðkomu fagaðila úr verslun.
Jafnframt hefur vinna við útfærslu á nýjum tillögum FA um
skipan náms í framhaldsfræðslu haldið áfram.
Starfshópur vegna tilraunaverkefnis í ferðaþjónustu
setti fram tillögu í ársbyrjun 2013 um nýtt skipulag náms í
framhaldsfræðslu þar sem gert ráð fyrir sveigjanleika í fram-
kvæmd þannig að námsmenn geti lokið námi með ýmsum
hætti. FA tók þátt í tilraunaverkefnum með Austurbrú, Far-
skólanum og Mími-símenntun í þeim tilgangi að prófa og
þróa hugmyndina. Reynslan gaf góðar hugmyndir um hvað
má betur fara og var gott innlegg í framhaldið hvað varðar
framsetningu námsskráa og niðurstaðna hæfnigreininga.
H Æ F N I G R e I N I N G A R
FA hefur þróað aðferð við hæfnigreiningar starfa til að
ákvarða fræðsluþörf markhópsins. Árið 2013 fékkst styrkur
frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu til að lýsa
aðferðinni í handbók og þróa námskeið fyrir þá samstarfs-
aðila sem vilja nota aðferðina.
Tilgangur verkefnisins var m.a. að gera samstarfsaðilum
kleift að nýta aðferðina og nota þau gögn sem FA hefur
unnið í þessum tilgangi og sett í hæfnigrunn FA. Með því fást
samræmd vinnubrögð og samanburðarhæfar niðurstöður.
Samhliða þessu verkefni var því unnið að endurskoðun og
þróun hæfniþátta og annarra gagna sem notuð eru og eru
nú 54 hæfniþættir til á íslensku sem lýst er á 4 þrepum í
hæfnigrunni FA.
þ R ó U N A Ð F e R Ð A Í F R A M H A L d S -
F R Æ Ð S L U
Frá upphafi hefur starfsemi FA falist í að þróa og halda
kennslufræðinámskeið en einnig í fræðslufundum og ráðgjöf
til samstarfsaðila. Í því skini hefur FA þróað 20 mismunandi
námskeið fyrir kennara og leiðbeinendur á sviði fullorðins-
fræðslu sem nefnast Stiklur. Námskeiðin eru á mismunandi
sviðum með þarfir markhóps FA að leiðarljósi og í samræmi
við óskir og ábendingar samstarfsaðilanna. Einnig hefur
verið byggt upp gagnasafn um framhaldsfræðslu með u.þ.b.
700 bókum og öðrum gögnum Auk þess sem mótaðar hafa
verið ýmsar aðferðir og mælistikur fyrir kennsluskipulag og
námsefnisgerð.
Frá árinu 2004 hafa alls verið haldin um 80 mislöng
kennslufræðinámskeið og fræðslufundir fyrir fræðslustarfs-
menn og leiðbeinendur, samtals 13.692,5 nemendastundir
og 1.340 nemendur. (Staðan 1. september 2014).
Á starfsárinu hefur FA tekið þátt í eftirfarandi innlendum
og evrópskum samstarfsverkefnum á sviði kennslufræða: