Gátt - 2014, Síða 39
39
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
hér að ofan, það er þar af leiðandi ekki nóg fyrir kennara að
geta miðlað innihaldinu vel, hann þarf að kunna til verka við
að virkja þátttakendur í eigin námi og styðja þá til ábyrgrar
samvinnu í náminu eigi gæði námsins að vera tryggð.
Það getur reynst flókið að hjálpa fullorðnum náms-
mönnum að axla ábyrgð í eigin námi, einkum þar sem tíminn
í grunnskóla og jafnvel framhaldsskóla snerist, að minnsta
kosti hjá mörgum, að miklu leyti um að læra að fara eftir leið-
sögn kennara og fara ekki eigin leiðir. Það er því sú hegðun
sem flestir tengja við nám í skipulögðum hópum. Þess vegna
getur verið full ástæða fyrir kennara og aðra starfsmenn
fræðslustofnana að vinna saman að því verkefni að virkja
þátttakendur og ýta undir sjálfsábyrgð þeirra í námi. Ef aftur
á móti gæðastjórnunin nær „aðeins að þröskuldi kennslu-
stofunnar“ eins og kom fram í ytri úttekt á tveimur fram-
haldsskólum (Bragi Guðmundsson & Trausti Þorsteinsson,
2012a bls. 35, 2012b bls. 33) er hætta á að kennarar missi af
nauðsynlegum stuðningi til að virkja nemendur í eigin námi.
Það eru viss tímamót í fræðslustarfi fyrir fullorðna á
Íslandi þegar flestir fræðsluaðilar, sem starfa á vettvangi
framhaldsfræðslu, hafa fengið gæðavottun. Það vekur for-
vitni og kallar á að kannað verði hver raunverulegur árangur
sé af þessu starfi. Hér verður lítilli könnun lýst sem leitast við
að skilja aðeins betur hvernig kennarar og verkefnastjórar
skilja og skynja gæði í starfi sínu.
V I Ð T Ö L V I Ð K e N N A R A o G V e R K -
e F N A S T j ó R A
Eins og áður hefur komið fram ákváðu þátttakendur við
námsbrautina „Nám fullorðinna“ að kanna hvaða áhrif
gæðavottun hefði haft fyrir starf kennara og verkefnastjóra í
fræðslustofnunum.
Ákveðið var að leita svara við tveimur spurningum:
• Hvernig skilja kennarar og verkefnastjórar við símennt-
unarmiðstöðvar gæði í námi?
• Hvernig finnst kennurum og verkefnastjórum gæða-
vinna í tengslum við EQM-gæðavottun hafa haft áhrif
á gæði náms þátttakenda á námskeiðum og á sitt
starf?
Vorið 2014 voru tekin átta viðtöl við einstaklinga sem höfðu
starfað hjá þremur fræðsluaðilum. Viðtöl voru tekin við fjóra
kennara og fjóra verkefnastjóra, bæði karla og konur. Við-
tölin fóru fram í einrúmi og voru tekin upp, meðalviðtalstími
var um 25 mínútur.
G R e I N I L e G Á H R I F V o T T U N A R I N N -
A R
Í viðtölunum gætir mikils samræmis í svörum viðmælenda
og er enginn munur á svörum eftir því hvar þeir vinna.
Greinilegt er að þeim þykir gæðavottunin góður stimpill sem
veitir starfsmönnum aukið sjálfstraust. Eftir að gæðavott-
unin fékkst finnst viðmælendum verkferlarnir ljósari, þeir
vita hvers er vænst af þeim og telja þeir að það sama eigi við
um þátttakendur á námskeiðum. Af þessu mætti draga þá
ályktun að þegar einstaklingur ákveður að sækja námskeið
hjá fræðsluaðila sem hefur gæðavottun EQM geti hann vitað
hvers hann getur vænst.
Þegar viðmælendur voru beðnir um að útskýra skilning
sinn á gæðum náms í símenntun voru svör þeirra allra mjög
svipuð. Viðmælendur voru sérlega sammála um að:
• Ánægja þátttakenda sé mælikvarði á gæði náms.
• Fagmenntaður leiðbeinandi innan fullorðinsfræðsl-
unnar komi til móts við þarfir nemandans á hans for-
sendum.
• Nemandi hafi tileinkað sér ákveðna færni og leikni
eftir námið og geti nýtt sér hana í atvinnulífinu.
• Góð tengsl við kennara skipti miklu máli til þess að
nemanda líði vel og vilji taka þátt í starfinu.