Gátt - 2014, Page 64
64
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Hvernig móttökur fékk bKA meðal fyrirtækja
og starfsmanna?
Við fáum aðeins jákvæð viðbrögð og við sjáum líka að þau
fyrirtæki sem fá stuðning taka verkefnið mjög föstum tökum.
Margir segja að þeir hefðu ekki sett í gang námskeið í grunn-
leikni ef ekki hefði komið til stuðningur frá BKA.
Hver hefur stærsta áskorunin verið við
framkvæmd bKA verkefnisáætlunarinnar?
Stærsta áskorunin varð ljós strax í upphafi þegar við gátum
ekki veitt stuðning til fjölmargra góðra og hæfra verkefna
af því við höfðum ekki næga peninga. Stjórnmálamenn hafa
lagst á sveif með okkur og aukið framlögin þannig að nú
getum við veitt nær öllum umsækjendum styrki, en enginn
fær styrk fyrir öllum kostnaði. Við höfum séð að mjög víð-
tæk pólitísk eining ríkir um BKA verkefnið meðal allra stjórn-
málaflokka á Stórþinginu. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2015
leggur ríkisstjórnin til að framlag til BKA verði hækkað um
280 milljónir íslenskra króna. Að auki vilja yfirvöld bæta við
nýjum verkefnum á þessu sviði og vilja nota nálægt 186
miljónir króna til þess sem við köllum BKF (Basiskompetanse
i frivilligheten) eða grunnleikni meðal frjálsra félagasam-
taka. Í frumvarpinu er líka lagt til að þróa sérstakt verkefni
til að kortleggja grunnleikni, sem verður lagað að þörfum
fullorðinna. Lagt er til að veita ríflega 93 milljónum íslenskra
króna til þessa verkefnis. Að sjálfsögðu vitum við enn ekki
hvort þessi ákvæði í fjárlagafrumvarpinu verði samþykkt en
þau sýna samt, svo ekki verður um villst, að norsk yfirvöld
leggja mikla áherslu á þennan málaflokk og vilja að unnið sé
duglega að því að auka grunnleikni fólks.
U M H Ö F U N d I N N
Albert Einarsson, er verkefnastjóri Norræna tengslanetsins
um nám fullorðinna, NVL. hann hefur unnið við fullorðins-
fræðslu á Íslandi, í Noregi og víðar á norrænum vettvangi í
meira en 20 ár. Albert er félagsfræðingur og kennari. Hann
er fastráðinn deildarsérfræðingur hjá Vox í Noregi, samhliða
starfinu fyrir NVL. Hjá Vox starfar Albert við fræðsluverkefni
um grunnfærni í atvinnulífinu, sem veitir fjárstuðning til verk-
efna með kennslu í lestri og skrift, reikningi og tölvunotkun.