Gátt - 2014, Page 73
73
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
þar sem jafningjastuðningur er mikill og allir upplifa sig sem
hluta af heild.
Við leituðum til fjögurra fyrrverandi nemenda Háskóla-
brúar og báðum þá að lýsa upplifun sinni af náminu í
Háskóla brú. Ástæðan fyrir því að þeir völdu að stunda nám
í Háskólabrú var að nám á dagtíma hentaði vel en einnig
að geta klárað námið á einu ári. Samsetning nemenda-
hópsins, eldri nemendur sem voru að styrkja stöðu sína til
áframhaldandi náms, var líka hluti af ástæðunni. Þeim fannst
námsumhverfið vera persónulegt og það skipti nemendurna
miklu máli sem og samheldni hópsins þegar kom að því að
takast á við krefjandi verkefni.
„Veturinn í náminu var frábær,“ eins og einn nemandinn
orðar það. Hin tala um að þau hafi eflst eftir því sem leið á
veturinn og metnaðurinn til að standa sig vel hafi aukist jafnt
og þétt. Nemendur nefna að þeir hafi lært vinnubrögð og aga
sem nýtist þeim í háskólanámi en þeir stunda nú nám við
Háskólann á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykja-
vík og einn nemandi rekur eigið fyrirtæki í dag.
Allir mæla þeir með námi í Háskólabrú. Þeim fannst
námið og umgjörðin fyrsta flokks, kennsla og ráðgjöf til fyrir-
myndar og síðast en ekki síst reyndist námið góður undir-
búningur fyrir háskólanám.
Frá því að Háskólabrú hóf göngu sína á Akureyri haustið
2010 hafa 127 nemendur skráð sig í námið. Flestir útskrifaðir
nemendur hafa innritast í háskólanám og er því óhætt að
segja að Háskólabrúin beri nafn með rentu.
Skráðir nemendur í Háskólabrú Keilis á
árunum 2010–2014.
Árið 2010 2011 2012 2013 2014
Fjöldi nemenda 28 27 23 27 22
Skipting nemenda eftir kyni.
Kyn Fjöldi
Konur 86
Karlar 41
U M H Ö F U N d A N A
Hildur Betty Kristjánsdóttir starfar sem verkefnastjóri og
náms- og starfsráðgjafi hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
á Akureyri. Hún hefur B.Ed.-próf í grunnskólafræðum, M.Ed.-
próf í stjórnun menntastofnana. Hún leggur stund á dokt-
orsnám í námi fullorðinna með áherslu á raunfærnimat við
Háskóla Íslands. Hún hefur starfað innan leik- og grunnskóla
við kennslu en síðustu ár við verkefnastjórn, kennslu og ráð-
gjöf innan fullorðinsfræðslunnar.
Valgeir Magnússon starfar sem verkefnastjóri og náms-
og starfsráðgjafi hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar á
Akureyri. Hann hefur B.Ed.-próf í grunnskólafræðum og er
meistaranemi í náms- og starfsráðgjöf með áherslu á raun-
færnimat við Háskóla Íslands. Hann starfaði hjá Vinnumála-
stofnun en síðustu ár við verkefnastjórn, kennslu og ráðgjöf
innan fullorðinsfræðslunnar.
Nemdur Háskólabrúar við útskrift 2012.