Gátt - 2014, Side 113
113
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Ráðstefnan, sem bar yfirskriftina Norrænar brýr í ævi-
menntun, var haldin í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu
í Reykjavík dagana 10. og 11. júní sl. og sóttu hana 220
manns hvaðanæva af Norðurlöndum.
Meginþema ráðstefnunnar Norrænar brýr í ævimenntun
fjallaði um tengsl á milli hugmynda, fræða og framkvæmdar
þvert á fagsvið. Rík áhersla var á samstarf á milli ólíkra geira,
vinnumarkaðar, fræðsluaðila og fræðimanna. Í átta sam-
stæðum vinnustofum var gerð grein fyrir ólíkum útfærslum
á tengslum bæði með fræðilegum erindum og raundæmum.
Þá var Biophiliu-verkefni Bjarkar Guðmundsdóttur gerð sér-
stök skil á ráðstefnunni.
U P P L ý S I N G A R F R Á R Á Ð S T e F N U N N I
Vinna við skjalfestingu hófst snemma í undirbúningsferlinu.
Ráðstefnunni var helguð sér síða á vef NVL, www.nvl.org, og
áberandi stað á forsíðunni. Allir viðburðir í aðdraganda ráð-
stefnunnar voru skjalfestir, þar á meðal fjórar vefstofur sem
Distans-fjarkennslunetið stóð fyrir. Meðan á ráðstefnunni
stóð voru sendar myndir og umfjöllun á Storify og Twitter,
auk þess voru allir fyrirlestrar á sameinuðum fundi teknir
upp á vídeó. Allar nánari upplýsingar um aðalfyrirlesara,
vinnustofur, námsheimsóknir og aðra viðburði, sem tengdust
ráðstefnunni, eru aðgengilegar á vef NVL, www.nvl.org og
upptökur á fyrirlesurum í sameinuðum fundi er hægt að sjá á
slóðinni: http://www.nordvux.net/nordiske-broer-2014.
Við opnun 66. þings Norðurlandaráðs, sem fram fór í
Stokkhólmi í október 2014, sagði Helle Torning Schmidt, for-
sætisráðherra Dana, að margir teldu að menntun væri grunn-
stoð norrænnar velferðar. Á þinginu var einnig samþykkt
stefna um stöðu Norðurlandanna í alheimssamfélaginu. Í
stefnunni eru fimm meginsvið: norræna líkanið, Norður-
löndin sem þekkingarsamfélög, norrænn sköpunarkraftur
auk menningar og náttúru Norðurlandanna. Verkefnin fram
undan verða því næg. Fulltrúar og samstarfsaðilar NVL frá
öllum norrænu löndunum takast á við þau af endurnýjuðum
kröftum, vel vitandi að styrkur okkar felst meðal annars í því
að við erum nógu lík til að geta starfað saman en samt nægi-
lega ólík til þess að geta lært hvert af öðru.
U M H Ö F U N d I N N
Sigrún Kristín Magnúsdóttir starfar sem sérfræðingur
hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Hún er ritstjóri Gáttar og
fulltrúi Íslands í norrænu tengslaneti um nám fullorðinna,
Sigrún Kristín hefur BA-próf frá Háskóla Íslands í norsku,tón-
listarfræðum og heimspeki, M.Sc.-próf í stjórnsýslu frá Uni-
versity of Massachusetts og kennsluréttindi frá Kennarahá-
skóla Íslands. Hún hefur sinnt ýmsum störfum við menntun
og fræðslu fullorðinna frá 1987, sem framkvæmdastjóri
fræðsluráðs hótel- og veitingagreina og kennslustjóri Hótel-
og matvælaskólans í MK og síðar Listaháskóla Íslands. Sigrún
Kristín hefur einnig þýtt margar bækur, bæði kennslubækur
og bókmenntaverk.
Kokkurinn sunginn hástöfum í hópefli í Björtuloftum.
Góð stemning á ráðstefnu í Hörpu.