Læknaneminn - 01.12.1980, Síða 41
(homocystinemia, hyperkolesterolemia) og
skyndilegur háþrýstingur.4- Allar þessar aðferðir
leiða til sáramyndunar í æðaþeli og síðar þeirrar
framvindu, sem að ofan er lýst, og svo mjög líkist
æðakölkun. Engu að síður verður að hafa hugfast,
að allar þessar tilraunir eru ófullkomin sönnunar-
gögn, þegar leitað er orsaka æðakölkunar. I mörg-
um tilraunanna er áverkinn miklu stórfenglegri,
heldur en ætla má að eigi sér stað við náttúrulegar
aðstæður, og hefur áhrif á fleiri lög æðaveggjarins
en æðaþelið eitt.36,37 Sumar tilraunanna hefur ekki
tekist að endurtaka í öðrum dýrategundum. Þannig
fundu Ross og Harker,41 að langvinn hækkun kóle-
steróls í blóði apa olli sármyndun í æðaþeli. Clowes
og samstarfsmenn43 fundu engin merki slíkrar sár-
myndunar í rottum með langvinna kólesteról-hækk-
un.
Auk ofangreindra dæma um æðakölkun af manna-
völdum (experimental atherosclerosis), hafa ýmsar
aðrar athuganir rennt stoðun undir áverkakenning-
una: Æðakölkun af náttúrunnar hendi (spontaneous
atherosclerosis) í mönnum og dýrum verður helst
fundin á þeim stöðum slagæðakerfisins, þar sem
mest mæðir ágangur blóðstreymis (hemodynamic
shearing), t. d. þar sem æðar greinast.42 Klassískri
æðakölkun hefur jafnvel verið lýst í bláæðum, sem
búa við sama blóðþrýsting og ríkir slagæðamegin í
blóðrásinni, t. d. vegna skammhlaups (shunts) milli
slagæðar og bláæðar44 eða þegar bláæð er notuð í
slagæðaskurðlækningum (bypass).45 Krufningar á
ungu fólki með ókalkaðar slagæðar hafa leitt í ljós
lítil æðaþelssár á sömu stöðum og oft má finna æða-
kölkun í eldri æðum.46 Þessar athuganir eru þó tak-
markaðar, og augljóslega er erfitt að fylgja ferli æða-
skemmda í mönnum frá fyrstu stigum. Hins vegar
eru til dúfur, sem fá æðakölkun á vissu æviskeiði.47
Vegna þess, að æðakölkunin herjar alltaf á sömu
hluta slagæðakerfisins, hefur verið unnt að fylgja
öllum þróunarferli æðaskemmdarinnar.48 Athyglis-
vert er, að æðaþelsbreytingar eru fyrstu merki þess,
að æðakölkun fari í hönd í dúfum þessum.48,49
Ýmsum tilgátum hefur verið varpað fram til
skýringar á hugsanlegu orsakasambandi æðakölkun-
ar og æðaþelsáverka. Eitt af hlutverkum heilbrigðs
æðaþels er að stjórna og takmarka innstreymi ým-
issa stærri sameinda inn í æðavegginn (selective
Áverkakenning
Æðaþelsáverki
Háþrýstingur
Hátt LDL
Reykingar
Ónæmisárás
Stífiræðaveggir
(öldrun, sykursýki)
V
Blóðflöguklumpun
Röskun PGI2/TXA2 hlutfalls
Reykingar
Hátt LDL
Sykursýki
Vaxtar- og hreyfivaki
v
Fjölgun sléttra vöðvafruma
í innlagi
V
Bandvefsmyndun -------^ Fitusöfnun
(kollagen, elastín.GAG)
Mynd 1.
barrier).33,50,51 Þótt sýnt hafi verið fram á, að
jafnvel stór prótein komist frá blóði inn í heilbrigð-
an slagæðavegg30,31,52 virðisL ljóst, að leið slíkra
sameinda, þ. á m. kólesterólríkra lípópróteina
(LDL), verður greiðari ef varnargarðurinn er rof-
inn.7,u1,53 Skilyrði hafa því skapast fyrir aukin
áhrif þessara sameinda á sléttar vöðvafrumur inn-
lagsins,9 og fyrir kólesteról og kólesterólestra að
hlaðast upp, bæði innan frumna og utan.
Blóðflöyur — Vaxtar- oy hrcyfivaUi
Nýleg útgáfa áverkakenningarinnar, sem nú á
miklu fylgi að fagna,13 á rætur að rekja til upp-
götvunar, sem Ross og samverkamenn hans gerðu
snemma á síðasta áratug.54 Þeir sýndu fram á, að
blóðflögur innihalda prótein, sem hvetur til fjölgun-
LÆKNANEMINN
39