Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1995, Side 35

Læknaneminn - 01.04.1995, Side 35
með 30 mínútur í mat. Voru þessir dagar mjög lýjandi. Einnig skiptu kennarar oft hver við annan um tíma án þess að nemendur vissu af og er það bagalegt. Miðað við önnur fög er verklega námið í geðlæknisfræði of langt. Með því að stytta það mætti fá meiri tíma fyrir heimilislækningar, luið- og kyn- sjúkdóma og háls-, nef- og eyrnalækningar, sem nú hafa mjög lítinn tíma í verklegt nám. Kennslumálaráðstefna Læknanema 1995 ályktar því: „Hentugasta fyrirlestraform í klínískum grein- um er að fyrirlestrar séu haldnir eftir hádegi (14- 16) tvisvar til þrisvar í viku.“ KVENSJÚKDÓMAFRÆÐI Enginn nemandi, sem lokið hafði kvensjúkdóma- fræði haustið '94, mætti á ráðstefnuna svo gera má ráð fyrir að þar sé allt eins og best verður á kosið. Enn vantar þó píptæki fyrir nemanda á fæðingarvakt. Verkleg frammistaða gildir 25% af einkunn og er það til fyrirmyndar. BARNALÆKNINGAR Fyrirlestrar hafa ekki þótt nægilega hagnýtir og jafnvel úreltir. Þeir sem mættu á ráðstefnu nú voru tiltölulega nýbyrjaðir á kúrsus en þóttu þeim fyrirlestrar sem höfðu verið lofa góðu. Klíníkur eru góðar. Nýr prófessor benti á tvær kennslubækur sem ekki eru í kennsluskrá. Þær eur álitlegar en því miður ekki fáanlegar í Bóksölu Stúdenta. Mappa með stundaskrá, vöktum .klíníkum, fyrirlestraskrá og fleiri upplýsingum var afhent á fyrsta degi. Hið besta mál en gott væri ef nemendur gætu nálgast þetta fyrr, þó ekki væri nema daginn áður Einnig var afhentur listi með yfir 50 atriðum sem ætlast er til að nem- endur kunni skil á og er slíkur listi mjög til hjálpar við yfirferð námsefni og hjálpar til við sjálfsnám. Kennsla á Landakoti er til fyrirmyndar. Þar fá nemar úthlutað sjúklingum sem þeir fylgja síðan eftir. Ætlast er til að nemendur þekki sína sjúklinga, gefi fyrirmæli undir handleiðslu aðstoðarlækna, þekki helstu rannsóknarniðurstöður og kynni þá á morgunfundum. Þ.e. að þeir taka ábyrgð á sínum sjúklingum. Verkleg einkunn sem er gefinn fyrir frammistöðu á deildum mætti vera hluti af í KENNSLUMÁLARÁÐSTEFNA bamalæknisfræði. Nemandi á vakt hefur nú píptæki, sem er mjög gott. GEÐLÆKNINGAR Bréf með skipulagi fyrir hvern og einn var sent heim til nemenda áður en kúrsus hófst og er það til fyrirmyndar. Einnig var afhent mappa með marklýs- ingu, fyrirlestraskrá o.fl. Lára Halla Maack verður að fá allan heiður að þessu. Ósanngjarnt var þó að segja í þessari möppu: “Stefnt er að því að verkleg einkunn gildi 25% til lokaeinkunnar í geðlæknisfræði”. en segja svo á sfðasta kennsludegi fyrir próf að verklegt eigi ekki að gilda neitt. Enginn er skrifaður höfundur þessarar möppu en þar sem titill hennar er: Lækna- deild Háskóla fslands - haustönn 1994, nám í geð- læknisfræði og taugalæknisfræði, hlýtur hún að vera á ábyrgð forstöðumanna þessara greina. Anægja var með prógrammið á Vífilstöðum. Á 33 A var góð kennsla. Nemendur voru látnir bera ábyrgð á “sín- um” sjúklingum og voru eins og hluti af starfsfólki deildarinnar sem er góð reynsla en slæmt var að hafa ekki neinn deildarlækni til að leita til. Á móttöku- deildum voru einnig áhugasamir læknar sem sinntu kennslu ágætlega. Á Borgarspítala var óánægja með mikla planfundasetu en litla klíník í verklegu námi. Á það einnig að hluta til um Klepp. Einnig virðist vera misræmi með viðveruskyldu némenda mili Landspítala og Borgarspítala. Fyrirlestrar þyrftu að vera markvissari og hagnýtari en flestir fyrirlesarar eru aðrir en þeir læknar sem eru á deildunum. Komin er út styttri útgáfa af Oxford Textbook, þyrfti að skoða hvort hún sé ekki alveg fullnægjandi á þessu stigi námsins. TAUGALÆKNISFRÆÐI Fyrirlestrar ágætir, margir hagnýtir. Færa þyrfti fyrirlestra framar á misseri svo vera á deild nýtist betur. Fyrirkomulag með seminör nemenda var ágæt- lega skipulagt og hvetjandi til sjálfsnáms. Einnig var gott að fá lista með atriðum sem ætlast var til að nemendur kynnu skil á og hvatti það einnig til sjálfsnáms. Verkleg einkunn gilti 25% af lokaeink- unn í taugalæknisfræði og er það til fyrirmyndar en það mætti samhæfa prófendur betur og meta frammi- stöðu á deildum á einhvern hátt eins og gert er í sumum klínískum kúrsum. Kennslubók Brain's ekki LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg. 33
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.