Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 19

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 19
eldri erum og mæðnari, en brátt, í samræmi við lög- mál lífsins, fara þeir fram úr okkur á leiðinni upp á fjallið, upp á efsta tindinn. Og það er sérstök ástæða til að árna félagsskap ungra jafnaðarmanna allra heilla af tilefni afmælisins, því þaðan má vænta þeiría, er ríkið eiga að erfa. Það er einnig ástæða til að bjóða velkomna menn sjálfrar verkalýðshreyfingarinnar, fulltrúa og ráðamenn Alþýðusambands íslands, bæði þá, sem eru fulltrúar á flokksþinginu og eins hina, er sitja hér sem gestir. Það er einmitt tákn um hið nána samband Alþýðuflokks og Alþýðusambands, þessara tveggja höfuðstofngreina alþýðuhreyfingarinnar. Samstarfið hefir verið náið og á að vera náið. Þessar tvær greinar voru í upphafi og 24 árin fyrstu samfleytt, samtvinnaðar í einu heildar- skipulagi, og frá þeim árum er sannarlega margs góðs að minnast. Og þó að skipulagið væri rofið fyrir 12 árum síðan, haldast enn og eiga vissulega að haldast, traust og órofa tengsl, þessara tveggja fylkinga, er að verulegu leyti stefna að sama marki. Eg býð fulltrúa og gesti frá hinum íslenzku verkalýðssamtökum sérstak- lega velkomna hing'að. Vi har den store fornöjelse at have her, ved kon- gressens ábning, en repræsentant fra Danmarks Social- demokrati. Det er vor partifælle, Carl P. Jensen, som ogsá repræsenterede De samvirkende fagforbund i Danmark pá vor faglige landsorganisations kongres. Denne udmærkede gæst, var ogsá til stede pá vor parti- kongres for seks ár siden, og der bragte han os en hilsen fra sit parti. Vi hilser denne vor gode gæst med begejstring. Han har her blandt os mange personlige 17

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.