Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Qupperneq 33
sé við stefnu jafnaðarmannaflokkanna í nágrannalönd-
unum. Það má um þá með sanni segja, að þeir segja
mest af Olafi kóngi, er hvorki hafa heyrt hann né séð.
En eitt er víst, að allir sannir sósíaldemokratar eiga
heima í Alþýðuflokknum og hvergi annarsstaðar. Við
vitum það öll, sem þennan flokk myndum, að það
erum við, en ekki aðrir, sem fyrir utan hópinn standa,
sem höfum unnið og munum áfram vinna, stig af stigi,
með misjöfnum hraða og árangri, að framkvæmd jafn-
aðarstefnunnar. Þegar við byrjum á þingstörfum að
þessu sinni, þá skulum við hafa það efst og ókvikult
í huga, að láta þetta þing verða upphaf að nýrri, djarfri,
drengilegri og markvissri sókn fyrir stefnumálum
flokksins. Fyrir dyrum standa alþingiskosningar.
Þingið verður að vera byrjun baráttunnar. Hér þurfum
við að skipuleggja sókn okkar, samhæfa kraftana og
sjónarmiðin. Við þurfum að týgja okkur til orustunnar,
brynja okkur gegn árásum, en hvessa þau drengilegu
vopn, er ein hæfa góðum málstað. Og ef við stöndum
öll saman, mun fylking okkar verða sigursæl.
Með þeirri ósk og öruggri trú lýsi ég yfir, að tuttug-
asta og þriðja þing Alþýðuflokksins er sett.
31