Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Qupperneq 31
kveðið sterkara að orði. En fólkið í landinu fór sínu
fram ■«— og sigraði.
En hér vil ég alveg sérstaklega minnast þess, að hinn
nýkjörni forseti Islands, Asgeir Asgeirsson, hefir setið
mörg undanfarin flokksþing, átt sæti í stjórn flokksins
og verið fulltrúi hans á Alþingi, og allsstaðar og ávallt
lagt gott og viturlegt til mála. Þegar hann nú að sjálf-
sögðu, er ekki lengur neinum stjórnmálaflokki bundinn,
heldur hafinn yfir alla flokka, er ástæða til að þakka
honum ágætt samstarf. Og' það er ekki síður ástæða til
þess að gleðjast yfir því, að íslenzka þjóðin hefir eignazt
glæsilegan forseta, er vissulega mun vinna sitt mikils-
verða starf með heill alþjóðar fyrir augum og verða
þjóðinni til sæmdar og álitsauka. Það er sérstök ástæða
fyrir okkur, sem lengi og vel höfum með Asgeiri As-
geirssyni unnið, að votta honum þakkir og árna honum
allra heilla.
Alltaf þegar þing Alþýðuflokksins koma saman, er
þörf á að minnast hins liðna, til þess að læra af því,
en þó ekki síður að líta til framtíðarinnar, efla þrótt og
áhuga og beina baráttunni af heilum og einlægum huga
að þeim miklu verkefnum, sem fram undan eru.
Það verður vafalaust sagt, eins og oftast áður, að
störf stjórnar Alþýðuflokksins hefðu þurft að vera
meiri, öflugri og markvissari en þau hafa verið á síð-
asta kjörtímabili. Og þetta má með sanni segja. Eg veit
það með vissu, að við hefðum þurft að vinna meira og
betur á síðasta kjörtímabili. Hjá flestum er það ekki
viljinn, sem skortir, en oft er við ramman reip að draga,
og ýmis, oft slítandi dagleg störf eru kannske ekki öllum
kunn og heldur ekki auglýsingarefni. Skýrsla gjaldkera
og formanns blaðstjórnar, er flutt verður á þinginu,
29