Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Síða 23
yfir móðuna miklu. En ég vil sérstaklega minnast tveggja
frábærra félaga okkar, sem nýlega eru látnir.
Frú Guðný Guðmundsdóttir Hagalín var óvenjuleg
kona, gáfuð og menntuð, með óbilandi kjark og áhuga.
Henni var samúðin með olnbogabörnunum í blóð borin.
Með óbilandi afli og sannfæringarvissu barðist hún til
hinstu stundar fyrir málefnum Alþýðuflokksins og mál-
stað smælingjanna. Skapfesta hennar, samblandin dá-
samlegri kýmni, gerði þessa konu minnisstæða, öllum
þeim, er henni kynntust. Hún var hetja og baráttukona
með viðkvæmt hjarta og hlýjan hug.
Alþýðuflokkurinn hefir orðið fyrir miklu tjóni við
fráfall Finns Jónssonar alþingismanns. Þótt hann væri
ekki gamall maður, er hann lézt, var hann einn af frum-
herjunum í hreyfingu okkar. Ungur gekk hann á hönd
hugsjón jafnaðarstefnunnar, og hélt órofa tryggð við
hana alla æfi. Og það er vissulega munur að því manns-
liði. Hann var óvenjulega starfhæfur maður, er aflað
hafði sér mikillar menntunar og staðgóðrar þekkingar,
einkum í sjávarútvegs- og fjárhagsmálum. Hann var
sérlega tryggur og vinfastur, áræðinn og ötull baráttu-
maður, sem alltaf var tilbúinn til starfs. I banalegunni
snérist hugur hans oft um flokkinn og alþýðuhreyfing-
una, og dauðveikur las hann fyrir greinar í Alþýðu-
blaðið. Hann starfaði sem hetja, hann dó sem hetja. En
minning hans mun lifa í annálum Alþýðuflokksins og
í hugum hinna mörgu félaga og góðu vina, og sú
hylling nær einnig til hundraða af tryggum flokks-
systkinum, sem látist hafa undanfarið þingtímabil. Við
lýsum þakklæti og friði yfir minningu hins mæta fólks.
Að þessu sinni eins og oft áður kemur þing Alþýðu-
21