Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 34

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 34
Skýrsla forseta Alþýðuflokksins, Stefáns Jóh. Stefánssonar. Eins og á undanförnum flokksþingum þykir mér hlíða að gefa skýrslu, sérstaklega varðandi stjórnmálin á liðnu kjörtímabili og afstöðu og afskipti flokksins af þeim. Verður þessi skýrsla hvergi nærri tæmandi, heldur verður þar aðallega rætt um einstök mál, sem ég tel mest einkennandi fyrir stjórnmálin og baráttu Al- þýðuflokksins. Eg hefi einnig í þingsetningarræðu minni drepið nokkuð á einstök atriði, og get því hér farið um þau færri orðum. En það er fyrst og fremst ætlunin með þessari skýrslu að varpa ljósi á nokkur höfuðatriði, sem eru mest einkennandi og sýna, hvernig miðstjórn og þingflokkur hefir brugðizt við málum. Er það og einnig ætlunin að rifja upp og skýra nánar stjórnmálaviðburðina, og gefa þá fullrúum kost á, ef þeir vilja ræða nánar afstöðu þingmálanna og mið- stjórnar til þessara mála, og leggja sinn dóm á, hversu með hefir verið farið og við brugðizt. Af fortíð og reynslu má alltaf læra og draga ályktanir varðandi bar- áttuna í framtíðinni. Þessi skýrsla mín snýst því eingöngu um stjórnmálin og afstöðu flokksins til þeirra eins og hún hefir verið mörkuð. En í framhaldi af henni mun ritarinn flytja skýrslu flokksins og formaður blaðstjórnar mun svo 32

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.