Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Qupperneq 26
afstöðu og örðugleika lítillar þjóðar, í sambandi við
vist varnarhersins.
En það er eitt, sem ég vildi sérstaklega vara við, og
ekki að ástæðulausu. Við megum ekki láta hinn ofsa-
fengna og slæga áróður kommúnistanna skapa óvináttu,
tortryggni og misskilning í garð Bandaríkjanna. Við
skulum minnast þess, að vel hefði Island getað
orðið, um lengri eða skemmri tíma, bráð nazismans, ef
ekki hefði notið hins geysimikla máttar Bandaríkjanna
í síðasta stríði. Hinn fyrirskipaði áróður kommúnista
um heim allan, í því skyni að æsa upp Bandaríkjahatur,
getur stundum orðið veikum sálum hrösunarhella.
Jafnaðarmenn verða víða um lönd að vara við þessari
hættu.
A nýafstöðnu þingi brezka Alþýðuflokksins, komst
einn af hinum ungu og efnilegu foringjum flokksins,
sem sérstaklega hefir kynnt sér utanríkismál, þing-
maðurinn Dennis Healy, meðal annars svo að orði, í
sambandi við afstöðu til Bandaríkjanna:
Við skulum minnast þess, að vinskapur sumra,
jafnvel innan okkar flokks, gagnvart Bandaríkja-
mönnum, kemur fram á þann einkennilega hátt, að
þeir nota hvert tækifæri til þess að reyna að
brjóta tennurnar í hinum amerísku vinum sínum.
„And-ameríkuisminn“ er skömm fyrir sósíalismann.
Sumir and-ameríkanarnir eru jafn ofsafengnir og
gyðingahatarar. Hvað er allt þetta hrifnæma hjal um
hugsjónir sósíalismans og alþjóðlega bræðrahyggju
mikils virði, þegar það þýðir, að við séum allir
bræður nema Bandaríkjamenn? Og getum við ekki
losnað við allt þetta þvaður um Wall-Street, sem
ráði amerískum stjórnmálum. Asakanir sumra manna
24