Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Qupperneq 28
hversu mikil nauðsyn sé á því að breyta um stefnu
og taka upp aðra stjórnarhætti.
Á því tæpa þriggja ára tímabili, sem samstjórn sú
sat, þar sem ég hafði forsæti, hækkaði gamla verðvísi-
talan úr 310 stigum í 330 stig, miðað við 1. sept. 1949,
eða ekki nema 6,45%. Frá þeim tíma til 1. nóv s.l.
hækkaði sama vísitala úr 330 stigum í 669 stig, eða
102,7%. Hljóta allir að sjá, hversu geigvænleg hætta
stafar af þessari ofsahækkun á öllu verðlagi í landinu,
bæði fyrir allt atvinnulíf og afkomu manna. Island
hefir, undir núverandi ríkisstjórn, slegið heimsmet í
dýrtíðaraukningu. Áður en núverandi ríkisstjórn tók við,
bar mjög lítið á atvinnuleysi. En allir vita, hvernig nú
er högum háttað í þessu efni. En þó væri þetta atvinnu-
leysi miklum mun meira, ef ekki hefðu komið til veru-
legar verklegar framkvæmdir á vegum varnarliðsins,
þar sem mörg hundruð, eða jafnvel þúsundir manna
hafa fengið nokkra vinnu. Þá kunna menn að segja, að
ríkisstjórnin hafi bætt úr vöruskortinum og afnumið
svarta markaðinn. En sannleikurinn í því máli er sá,
að núverandi ríkisstjórn hefir, vegna aðgerða fyrrver-
andi stjórnar um þátttöku í Marshallaðstoðinni, fengið
sem gjafafé um 23 millj. dollara, eða um 370 millj. ísl.
króna. Af þessum ástæðum, og þeim einum, hefir tekist
að flytja inn miklar vörur til landsins og framkvæma
stækkun Sogsvirkjunar og Laxárvirkjunar og hefja
byggingu áburðarverksmiðju. Og með bátagjaldeyris-
óstandinu hefir raunverulega verið löghelgaður svartur
markaður í landinu. Samtímis hefir verðlagseftirlitið
verið gert að engu og allt látið reka á reiðanum, varð-
andi skipulagslausan innfluning, sem aftur hefir leitt
til þess, að margur iðnaður í landinu á við mjög knöpp
26