Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Blaðsíða 53
Hér hafa þá verið rakin helztu málefnin, er þing-
flokkur Alþýðuflokksins hefir flutt og barizt fyrir, og
um leið drepið á, að stjórnarflokkarnir hafa ýmist sýnt
þessum málum fáleika eða fullan fjandskap. En eitt er
víst og áreiðanlegt: Að þessi mál þingflokksins og barátta
fyrir þeim, markar skýra og ákveðna stefnu flokksins
til umbóta og er í fullu samræmi við ákvarðanir flokks-
þinga og flokksstjórnar. Ber brýna nauðsyn til þess
að blöð flokksins og flokksmennirnir yfirleitt, fylgi
þessari sefnu fram ótrauðlega bæði í ræðu og riti. Hér
eru sannarlega á ferðinni mál, er verðskulda bæði fulla
eftirtekt og það, að fyrir þeim sé barizt af fullum þrótti,
allsstaðar þar, sem unnt er að koma því við og af öllum
þeim, er fylgja vilja stefnu flokksins og meta málefni
hans. Gefst vissulega tækifæri til þess fyrir flokks-
þing'ið að undirstrika þessi mál og önnur fleiri, veita
þeim brautargengi, og síðan taka upp baráttu fyrir
þeim í samstæðri fylkingu, gefa ekkert lát á orusunni,
hefja kosningaróðurinn strax á þessum trausta grund-
velli. Þá ætti að vera auðið að skapa þessum marghátt-
uðu umbótamálum aukið og öflugt fylgi við næstu
alþingiskosningar, og þannig tryggja og styrkja aðstöðu
flokksins til áframhaldandi baráttu og áhrifa.
Aukakosningar.
Eins og alkunnugt er hafa farið fram þrennar auka-
kosningar á tímabilinu á milli flokksþinga. I Mýra-
sýslu stóð barátta eins og alltaf áður á milli frambjóð-
enda Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins. Það eitt leiddi
ekki hvað sízt til þess, að nokkuð fækkaði atkvæðum
ágæts frambjóðanda Alþýðuflokksins. Sumir kjósendur
flokksins í Mýrarsýslu vildu frekar beita atkvæði sínu
51