Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Blaðsíða 25
heimsfriðnum, ganga nú fram fyrir skjöldu í því skyni
að auka á áhættuna við dvöl varnarliðsins. Það var og
er að áliti Alþýðuflokksins, nauðsynlegt að hafa hér
her, viðbúinn til varna. Þessari staðreynd skulum við
ekki gleyma. Alþýðuflokkurinn hefir einnig verið al-
gerlega andstæður því, að stofnaður væri íslenzkur her,
og mun sú afstaða flokksins vera óbreytt, enda hníga
að því mörg rök, sem hér verða ekki rakin, að stofnun
íslenzks hers væri hættuleg straumhvörf í stjórnmál-
um, og myndi bæði fjárhagslega og á ýmsan annan veg,
verða okkar litla þjóðfélagi hættulegur fjötur um fót.
Þegar þess er gætt, hvað hinar smáu lýðræðisþjóðir,
er setja frelsi og öryggi öllu ofar, verða nú að leggja að
sér í hervarnaskyni, þá skyldi það engan undra þó að
Islendingar þyrftu einhver óþægindi á sig að taka Og'
þau eru fyrst og fremst fólgin í því að hafa útlendan
her til varna í landinu.
Eg játa það, eins og áður segir, að það geta risið upp
viðkvæm vandamál, er af því stafa. Það má þó með
sanni segja að ekki hafi orðið margir beinir árekstrar.
Vandamálin eru félagslegs eðlis. Það er alveg óhjá-
kvæmilegt að eiga nokkur skipti við varnarherinn. Er
það að verulegu leyti undir okkur sjálfum komið, að
þau samskipti verði ekki háskasamleg.
Við þurfum að varast að bera í brjósti of mikla minni-
máttarkennd. Við þurfuin í þessu falli eins og flestum
öðrum að gera kröfur til okkar sjálfra, en ekki fyrst
og fremst annarra. Að sjálfsögðu verður einnig að gera
þær kröfur til stjórnenda hins erlenda varnarhers, að
þeir geri einnig allt, sem í þeirra valdi stendur til þess
að afstýra vandkvæðum, og að þeir skilji og meti rétt
23