Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 35

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 35
einnig skýra frá fjárhagsafkomu flokks og Alþýðublaðs- ins og því, sem gert hefir verið og framkvæmt, varð- andi þau atriði á kjörtímabilinu. Síðan gefst þinginu tækifæri til þess að ræða þessi mál og gera þær álykt- anir, sem það sér ástæðu til. Utanríkismál. Það hefir orðið svo með Alþýðuflokkinn á Islandi, eins og með jafnaðarmannaflokka í flestum nágranna- löndunum, að myndazt hefir nokkuð ákveðin samstaða lýðræðisflokkanna allra, varðandi höfuðatriði utanríkis- mála. Hefir þetta að verulegu leyti orðið á líka lund, hvort sem jafnaðarmannaflokkarnir hafa farið með ríkis- stjórn eða verið í stjórnarandstöðu. I Noregi og Svíþjóð sitja jafnaðarmannaflokkarnir í stjórn. Hinir borgara- legu lýðræðisflokkar, sem eru þar í andófi, eru þó í öllum meginatriðum sammála utanríkisstefnu þessara stjórna. Jafnaðarmannaflokkurinn danski er í stjórnar- andstöðu en styður og er mjög í ráðum við ríkisstjórn- ina um framkvæmd utanríkismálanna, enda væri þeirri stjórn, er hefir að öðru leyti minni hluta þing's að baki sér, ekki unnt að framfylgja utanríkismálunum, nema með beinum og óbeinum atbeina Alþýðuflokksins. Svipaða sögu er að segja frá Bretlandi. Þar hefir löng- um, hin síðari ár, verið að mestu leyti samstaða á milli Alþýðuflokksins og íhaldsflokksins um utanríkismál, þó að nokkuð hafi bólað á ágreinmgi síðustu tímana, og þá aðallega fyrir áhrif einstakra manna í Alþýðu- flokknum og er mjög óvíst til hversu mikilla heilla það leiðir fyrir flokkinn yfirleitt. En samt má segja, að bilið sé ekki breitt á milli aðalflokkanna um höfuðstefnu í utanríkismálum. 33

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.