Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Page 46

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Page 46
þá þarf engan að undra þótt þröngt sé nú fyrir dyrum margra alþýðuheimila. Það er því miður einnig svo komið, að óvenjulega ömurlegt ástand og öryggisleysi blasir nú við framtíð fjölda manna. Og þó væri þetta enn geigvænlegra, ef ekki hefði notið við 3—400 millj. króna gjafafjár, er gert hefir kleift að viðhalda innflutn- ingi og leggja í framkvæmdir við byggingu viðauka órkuveranna við Laxá og Sog og að reisa áburðarverk- smiðju. Og ekki má heldur gleyma því, að framkvæmdir á vegum varnarhersins hefir veitt mörg hundruð mönn- um vinnu. Ef ekld hefði komið til þessarar tvöföldu er- lendu aðstoðar, væri hér á landi orðið hreint öngþveiti og algert neyðarástand. Það er aðeins þetta en ekki stjórnarstefnan, er hefir hindrað algert öngþveiti. Þannig blasa við í dag, áhrif stjórnarstefnunnar á hag almennings. En rétt er að geta þess hér, að ekki hefir þetta ástand skapað öllum örbirgð og vandkvæði. Ymsir spákaup- menn og forréttindafólk lifir nú betra lífi en oftast áður, í skjóli þeirrar stefnu, er ríkisstjórnin hefir fylgt. Þeir þurfa undan engu að kvarta. Þeir hafa ríkisstjórn, er þeir geta við unað. Vegna stjórnarstefnunnar og.hinna síversnandi kjara almennings, hefir það óhjákvæmilega leitt til þess, að verkalýðssamtökin sjá sér ekki lengur fært að una þessu ömurlega ástandi. Hafa þessi samtök því séð sig neydd til þess að segja upp samningum og krefjast leiðréttinga mála sinna. Ekki er nú unnt að segja, til hvers sú barátta leiðir. En eitt er víst, að verka- lýðshreyfingin hefir verið umburðarlynd og ekki lagt til átaka fyrr en henni fannst mælirinn orðinn fleyti- fullur. 44

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.