Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 52

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Side 52
um stöðum, þar sem þess er kostur og mest þörf til atvinnuaukningar. Ekki virðist þetta nauðsynjamál heldur mæta þeim skilningi og stuðningi, sem vert væri, heldur kulda og fásinni stjórnarliðsins. Bátagjaldeyriskerfið og öll framkvæmd ríkisstjórnar- innar til stuðnings bátaútveginum, hefir bæði verið óþinglega framkvæmd, fálmkennd, skipulagslaus og leitt til þess, að lagður hefir verið óhæfilegur skattur á margar nauðsynjavörur, og allskonar milliliðir og gróðabrallsmenn átt þess drjúgan kost að maka krók- inn, en sjómenn og heiðarlegir bátaútvegsmenn borið skarðan hlut frá borði. Til þess að lagfæra þennan vanskapnað, koma á betra og réttlátara skipulagi, hindra okur og gera auknar tilraunir til markaðsöflunar, hefir þingflokkur- inn nýlega flutt frumvarp um framleiðsluráð sjávarút- vegsins, afnám bátagjaldeyrisskipulagsms o. fl. Er þar gert ráð fyrir, að framleiðsluráð taki að sér verkefni fiskimálanefndar og hafi að öðru leyti forgöngu um það að tryggja rekstur bátaútvegsins, að bátagjaldeyris- formið verði afnumið í sinni fyrri mynd, en í stað þess lagt innflutningsgjald á vissar, miður nauðsynlegar vörutegundir, en um leið tryggt, að þær verði seldar við svo vægu verði sem unnt er, og fénu varið til að tryggja svo hátt verð á útfluttum bátafiski, sem nauðsynlegt er til þess að geta rekið bátaútveginn. Er hér um mörg og merkileg nýmæli að ræða, sem tími vinnst ekki til að rekja. En hér er vissulega um mál að ræða, er gæti haft í för með sér miklar umbætur og hagræði fyrir almenning. En ef að líkum lætur þarf vart að búast við því, að stjórnarflokkarnir hafi áhuga eða vilja til þess að Ijá þessum merku nýjungum lið. 50

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.