Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Page 71
bátaflotans (frystihús, söltunarstöðvar, fiskimjöls-
verksmiðjur, lýsisbræðslur) eða annast aðra þjón-
ustu fyrir hann (viðgerðarverkstæði, verzlunar-
fyrirtæki), verði rekin með samvinnusniði af útvegs-
mönnum og sjómönnum, svo að þessir aðilar fái
sannvirði aflans í sinn hlut.
5) Gildandi skipulag á útflutningi sjávarafurða verði
endurskoðað í því skyni að tryggja víðtækari
markaðsleit, samræmdari heildarstjórn, öruggara
eftirlit og sem hæst verð til eigenda aflans.
6) Bátagjaldeyrisskipulagið svo nefnda verði afnumið.
Að svo miklu leyti sem fyrr greindar ráðstafanir
kunna ekki að nægja til þess að tryggja afkomu
bátaútvegsins hverju sinni, veiti ríkissjóður nauð-
synlegan fjárhagsstuðning og afli til þess fjár með
aðflutningsgjaldi og framleiðslugjaldi á varning, sem
ekki verður talinn til nauðsynja.
II. Landbúnaðarmál.
1) Landbúnaðarframleiðslan verði efld og' styrkt með
aukinni ræktun og bættum véla- og húsakosti.
2) Unnið verði að því að skipuleggja bæði framleiðslu
og dreifingu þannig, að hvort tveggja takizt: Að gera
afurðirnar ódýrari neytendum og bæta hag bænda-
stéttarinnar.
3) Framkvæmd verði gagnger rannsókn á verðlags-
grundvelli innlendrar landbúnaðarvöru í því skyni,
að tryggja bændum réttmætar tekjur og neytendum
sanngjarnt verð.
4) Gerðar verði sérstakar ráðstafanir til þess að lækka
dreifingarkostnað á landbúnaðarvörum.
69