Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 29.11.1952, Page 73
4) Tekið verði upp opinbert verðlagseftirlit með allri
innfluttri vöru og innlendri iðnaðarvöru og þjónustu.
5) Innflutningur til landsins verði ekki takmarkaður
með höftum nema að svo miklu leyti sem nauðsyn-
legt kann að reynast til þess að tryggja framgang
ákveðinna stórframkvæmda eða afstýra yfirvofandi
vandræðum í gjaldeyrismálum.
V. Kaupgjaldsmál.
1) Greidd verði mánaðarlega full vísitöluuppbót á allt
kaupgjald.
2) Endurskoðaður verði grundvöllur framfærsluvísi-
tölunnar þannig, að tryggt verði, að hún sýni breyt-
ingar á raunverulegum framfærslukostnaði.
3) Unnið verði að því, að konum verði greidd sömu
laun og' körlum fyrir sömu vinnu.
4) Komið verði á þeirri skipan, að nefnd, skipuð full-
trúum frá samtökum launamanna (Alþýðusambandi
íslands og B. S. R. B.), bænda, atvinnurekenda og
ríkisvaldsins semji til eins árs í senn um grund-
vallaratriði í launamálum og verðlagsmálum land-
búnaðarins.
VI. Skattamál.
1) Felldir verði niður eða lækkaðir tollar og sölu-
skattur á helztu nauðsynjavörum.
2) Meðan tekjuskattur er innheimtur samkvæmt gild-
andi skattstiga, verði tekjur umreiknaðar með vísi-
tölu, er sýni raunverulegt verðfall peninga, síðan
skattstiginn var settur. Allir tekjuskattar verði sem
fyrst sameinaðir, og ennfremur athugaðir mögu-
71