Úrval - 01.03.1965, Blaðsíða 36
34
ÚRVAL
lækningaritið): „Er taugaveiklað
fólk missir skyndilega stuðning
þeirra, sem verið hafa þvi nokk-
urskonar máttarstoðir, virðist slikt
oft jafnvel stuðla að bata.“
Hinn frægi sállæknir dr. Karl
Menninger heldur því fram, að
alvarlegur andlegur sjúkdómur geti
jafnvel stundum haft þau áhrif, að
hinn sjúki verði enn heilbrigðari
og sterkari en áður, þegar bata hef-
ur verið náð. Þakkar hann það
auknum skilningi hins fyrrverandi
sjúklings á eigin persónuleika. Því
hafa margir rithöfundar ritað sin
beztu verk eftir taugaáföll eða mik-
il þunglyndisköst. Má þeirra á með-
al nefna þá Jolin Stuart Mill og
William James.
SJÁLFSVIÐURKENNING
Hinar verðmætustu og áhrifa-
mestu varnir mannshugans er trú-
in á eigið gildi og lífið. Sálfræð-
ingar nefna slíkt „sjálfsviðurkenn-
ingu“, þ. e. það að viðurkenna sjálf-
an sig eins og maður er, að sjá sjálf-
an sig með augum raunsæinnar og
að einblína fremur á kosti sína,
þannig að okkur geðjist vel að því,
sem við sjáum. William James tal-
aði þannig um þennan hæfileika
sem „trúna á andlega heilbrigði".
Dr. Menninger kallar slíkt „innri
kraft“, sem hann álítur alla búa
yfir í mismunandi ríkum mæli.
Ekkert af þessu merkir það, að
við getum alltaf setið auðum hönd-
um og gert ráð fyrir því af mikilli
hugarró, að allt hljóti að fara vel.
Þótt það sé rétt, að hugurinn búi
yfir furðulegum „Iækningatækjum“
til lækningar á eigin veilum, þá er
samt stundum nauðsynlegt að
hjálpa öflum þesum áleiðis og beina
þeim á réttar brautir. Sá, sem glím-
ir við alvarlegt vandamál á sviði
tilfinningalífsins, ætti að leita ráða
sérfræðinga á því sviði.
En eftir að hafa rannsakað lækn-
ismátt mannshugans sjálfs, kemst
ég ekki hjá því að álíta, að hin
eðlilega og ósjálfráða tilhneiging
okkar miði að þvi að lækna okkur
fremur en að eyðileggja. Þótt fjöl-
margir vitrir og svartsýnir heim-
spekingar hafi lýst manninum sem
veikbyggðri, aumri og vesælli veru,
þá kýs ég heldur að skipa mér i lið
með sálmaskáldinu, sem sagði: „Af
meistara höndum ég meitlaður er.“
*
Við getum ekki farið yfir brú, íyrr en við komum að henni, en ég
kann alltaf vel við að byggja bráðabirgðabrú fyrir fram.
Bernard Baruch
Réttlætiskennd mannsins gerir Iýðræðið mögulegt, en ranglætis-
tilhneiging gerir lýðræðið nauðsynlegt. Reinhold N'iebuhr