Úrval - 01.03.1965, Blaðsíða 80
78
ÚRVAL
hugfanginn á 52 tonna graftarvél,
ófreskju, sem beit 5 tonna stykki
úr námuveggnum í einum bita.
Skurðhausarnir á henni snerust
stöðugt í hring og skáru 7 feta hring
í liverri umferð. Þeir skáru 19 þuml-
unga á mínútu og köstuðu pottösk-
unni, stórum stykkjum, smáum
stykkjum og dufti, aftur fyrir sig
upp á flutningavagn, en af honum
var efninu síðan hvolft á færibönd-
in. Á minna en 2 árum hafa 6 slik-
ar graftarvélar grafið um 50 milna
löng göng og sent yfir hálfa aðra
milljón tonna af pottösku á markað-
inn, enda kostar hver slík vél
250.000 dollara.
Við fylgdumst með pottösku-
sendingu til verksmiðjunnar. Það
tók ekki klukkustund að mylja efn-
ið í duft, skella því ofan i sérstaka
upplausn, þar sem pottöskubasinn
var aðgreindur frá söltunum,
þurrka það, hreinsa og flytja í einn
af 4 risastórum geymum, sem eru
líkastir keilum í laginu. Pottaskan
átti ekki eftir að staldra lengi við
í geymum þessum. Slik er eftir-
spurnin eftir pottösku um heim all-
an, að unnið er i 3 vöktum í nám-
unni eða allan sólarhringinn, og
70 fullhlaðnir járnbrautarvagnar
fara á degi hverjum frá verksmiðj-
unni.
„Það veitir alveg sérstaka ánægju-
kennd að selja þessa vöru,“ sagði
Thomas M. Ware, forstjóri námu-
félagsins, við mig. „Hún kann að
geta bundið enda á hungrið í heim-
inum.“ Og þessi orð má ekki skoða
sem auglýsingaskrum eitt. Allt frá
morgni siðmenningarinnar hefur
uppskerubrestur dæmt menn til
hungurdauða. Hungrið hefur oft
verið lokahvatningin, sem tældi
menn til ofbeldis og uppreisnar.
Og engu ríki hefur tekizt að verða
iðnþróað, á meðan meirihluti í-
búanna varð að heyja örvæntingar-
fulla baráttu til þess eins að hafa
eitthvað í sig.
Pottaskan er þýðingarmesta efn-
ið, sem notað er í tilbúinn áburð,
sem getur hjálpað til þess að marg-
falda uppskerumagn jarðvegs, er
hungrar eftir málmefnum. Þessar
100 billjón dollara pottöskubirgðir
i Kanada eru því annað og meira
en gróðavænlegur lukkupottur, sem
ríkið hefur skyndilega dottið ofan
í. Birgðir þessar eru voldugt nýtt
vopn í baráttunni fyrir allsnægtum
og öryggi mönnum til handa.
Svör við Vandaðu mál þitt á bls.
50.
1. að vérða frægur. — 2. ánægð
með sig, djarfleg. — 3. óveður, él. —
4. að sýna stærilæti. — 5. jarðyrkju-
eða heyvinnuáhöld, heimilistæki. —
6. tröllskessa. — 7. að hæða, lasta,
gelta. — 8. sonur. — 9. að klifra ó-
gætilega. — 10. maður. 11. að mjakast
áfram, að drattast. — 12. óvitur, ó-
kurteis. — 13. torf án grassvarðar.
— 14. að kulna, að dofna. — 15. ó-
þolinmóður. — 16. deilugjarn, við-
skotaillur. — 17. þetta er sterkt. —
18. að sjá hag sínum borgið. — 19.
að hjálpa upp á sakirnar fyrir e-n.
— 20. að biðja e-n um að gera e-ð.