Úrval - 01.03.1965, Blaðsíða 111
MAÐUR ALDARINNAR
109
Bandaríkjanna. Athöfn þessi fór
fram í rósagarði Hvíta Hússins, og
var hún látin fara fram á þeim tíma,
að brezka ríkissjónvarpsstöðin gæti
endurvarpað henni með hjálp
gervihnattarins „Telstar" og Sir
Winston gæti fylgzt með henni í
sjónvarpi heima í Stóra Bretlandi.
„Hann var barn neðri málsstof-
unnar,“ hljóðaði yfirlýsingin, ,,en
varð síðar faðir hennar. Með því
að bæta nafni hans við heiðurs-
lista okkar viljum við heiðra hann,
en það er okkur enn meiri heiður,
að liann vill taka við þessari viður-
kenningu. Því að engin yfirlýsing
getur varpað auknum ljóma á nafn
hans og gert það dýrlegra. . . . nafn
Sir Winstons Churchills er þegar
orðið þjóðsaga.“
— Kansas City Star.
NEÐRI MÁLSTOFAN KVÖDD
27. febrúar árið IIHtk. Sir Wins-
ton hefur lýst þvi yfir, að ha-nn
muni ekki bjóða sig framar fram
til þings. En síðustu vikur sínar
sem þingmaður fyrir Woodford
kemur hann eins oft í neðri mál-
stöfuna og honum er frekast unnt.
Stóru hurðirnar gegnt blaða-
mannasvölunum eru opnaðar af
tveim kjólklæddum sendibaðum.
Rétt utan við dyrnar stendur hjóla-
stóll. Tveir þingmenn íhaldsflokks-
ins, sem gera sér grein fyrir því,
hvílíkur heiður þeim hlotnast,
hjálpa Sir Winston að rísa á fætur
úr stólnum. Það hefði verið hægt
að aka honum að sæti hans í hjóla-
stólnum. Svipað hefur gerzt áður
í sögu þingsins. En liann er allt
of hugrakkur og' stoltur til þess
að koma inn í málstofuna akandi
í hjólastól.
Þingmennirnir tveir hjálpa föð-
ur neðri málstofunnar að ganga inn
í þingsalinn. Hann gengur hægt og
tekur stutt skref. Hann lieldur fast
í göngustaf sinn með hægri hendi
og hattar sér þungt fram á hann.
Hann stanzar og hneigir sig í virð-
ingarskyni fyrir forseta líkt og allir
þingmenn gera, er þeir koma inn.
Síðan gengur hann reikull til sæt-
is. Allra augu fylgjast með þess-
ari göngu, sem einkennist af stoltri
reisn og hugrekki. Síðan lætur
hann sig síga niður á grænt leður-
sætið.
Ihaldsþingmaðurinn, sem situr
við hlið honum, réttir honum hlað-
ið, sem fyrirspurnir til ráðherr-
anna eru prentaðar á, og bendir
á þá spurningu, sem verið er að
svara. Þrátt fyrir hinn háa aldur
Sir Winstons eru hendur lians stöð-
ugar. Blaðið skelfur ekki í höndum
hans, er hann heldur á því. Sir
Alec Douglas-Home gengur úr sæti
sínu til þess að lieilsa Sir Winston
með handabandi og sezt niður á
teppalagt þrepið við hlið sætis
hans til þess að ræða við hann.
Þegar Sir Winston er búinn að
fá nóg, tekur liann upp staf sinn.
Þingmennirnir tveir ganga til hans
til þess að hjálpa honum á fætur.
Ef hann er ekki alveg örmagna,
segir hann við þá önugum rómi,
að hann vilji ganga einn og óstudd-
ur, og hann gengur einn og styður
sig við staf sinn. í vinstra fæti
hans er enn skurðklemma vegna
brots árið 19G2, og stundum þolir