Úrval - 01.03.1965, Blaðsíða 95
MAÐUR ALDARINNAR
93
um, og „Mulberry“, gervihafnirnar
fyrir innrásina í Normandí.
— Alan Moorehead.
Ghurchill setti á laggirnar nefnd
til þess að hafa eftirlit meS undir-
búningnum fyrir innrásina í NorS-
ur-Frakkland og var sjálfur for-
maður hennar. Hann lét sig éin-
hverju skipta allt það, er snerti
innrásina, allt frá vatnsþéttum
skriðdrekanna til liinnar flóknu
áætlunar um árásir skipa og flug-
véla ag hann hélt margar ráðstefn-
ur með Eisenhower hershöfðingja.
Forsætisráðherrann hafði ákveðið
að sigla sjálfur með innrásarflot-
anum yfir til Frakklands á sjálfan
innrásardaginn. Eisenhower sagðist
alls ekki leyfa slíkt. Churchill benti
á, að valdssvið hershöfðingjans
tæki ekki til herstjórnar brezka
styrjaldarrekstursins og bætti blið-
lega við: „Ef ég færi sjálfur sem
lögskráður meðlimur áhafnar eða
Churehill með Eisenhover við liðskönnun.
herdeildar, hefðirðu alls ekkert
vald til þess að hindra mig í því.
„En til allrar hamingju var gripið
ákveðið í taumana úr alveg óvæntri
átt. Georg konungur benti á, að ef
rétt væri fyrir forsætisráðherrann
að taka persónulega þátt í innrás-
inni, þá hefði hann sjálfur meiri
rétt til þess. Churchill lét undan,
en þetta olli honum sárum von-
brigðum.
— Gerald Pawle.
Hann hélt áfram að starfa dag
eftir dag.... nótt eftir nótt. Á-
byrgðartilfínning hans var geysileg
og óhagganleg. Ég minnist þess eitt
sinn, er ég var á einum fundi
Striðsstjórnarinnar, að fram kom
uppástunga um að veita gömlum
opinberum embættismönnum nokk-
urra vikna leyfi.
„Jæja,“ sagði Winston, „ég býst
við því, að ég verði að samþykkja
þetta, fyrst þið krefjizt þess. En
ég játa það, að ég skil ekki, hvernig
nokkur, sem nýtur þeirra sérrétt-
inda að taka þátt i þessari stór-
kostlegu baráttu, getur þolað að
verða að liverfa frá skyldustörfuin
sínum þótt ekki sé nema í fimm
mínútur.“
— Robert Menzies.
Amerískur vinur Winstons spurði
hann eitt sinn, hvort hann hefði
ekki átt erfitt með að sofa á stríðs-
árunum. Churchill svaraði á þessa
leið: „Erfitt? Nei, nei. Ég lagði
bara hausinn á koddann og sagði:
Fari allir til fjandans! og steinsofn-
aði!“
— Sir Gerald Campbell.