Úrval - 01.03.1965, Blaðsíða 127
JÖGUR ORí) geta ef
til vill hjálpað til að
bjarga mannslífi. Þessi
fjögur orð, sem vísa
veginn til að þekkja
þess konar taugabilun eða tauga-
áfall (nervous breakdovvn), sem
geðlæknar nefna „depression" (al-
varlegt þunglyndi), eru svefnleysi,
lystarleysi, deyfð og sektartilfinn-
ing. Árlega fremja 20 þúsund manns
sjálfsmorð i Bandaríkjunum (rúm-
lega helmingi fleiri en á íslandi
hlutfallslega). Að minnsta kosti
þriðjungur þeirra stafar af „de-
pression“.
Læknir þekkir einkenni þung-
lyndisins, en margt þunglynt fólk
sálgrar sér, áður en það leitar lækn-
is. En ef vinir eða vandamenn
kæmu auga á hættumerkin, væri
hægt að hjálpa sjúklingnum áður
en það væri of seint.
Sá, sem veit um aðaleinkennin á
auðvelt með að þekkja alvarlegt
þunglyndi. Hér skulu nefnd fjögur
algengustu einkennin.
1. Svefninn. Þunglyndi fylgja á-
vallt erfiðleikar með svefn. Venju-
lega gengur sjúklingnum sæmilega
að sofna, en vaknar svo eftir 2 til
4 klukkustundir og getur þá ekki
sofnað aftur.
2. Matarlystin. Langoftast fylgir
því einnig lystarleysi og megrun.
3. Deyfð. Það dregur úr andlegri
og likamlegri starfsemi. Þunglynt
fólk missir áhuga, metnað og hæfi-
leika til að einbeita sér.
4. Sekt. Þunglynt fólk þjáist af
óljósri sektartilfinningu út af engu
1---------------
FJÖGUR
ORB
sem geta kom-
ið í veg fyrir
sjálfsmorð
Þau geta bent á hættumerkin,
áður en það er of seint.
Bryant H. Roisum, M.D.
sérstöku. Það gagnrýnir sjálft sig
og finnst allt vonlaust.
Mörg fleiri einkenni getur verið
um að ræða, en þessi fjögur eru
mest áberandi og nægja til að gera
sjúkdómsmyndina ljósa.
Táknrænt dæmi um þunglyndi
er sjúkrasaga Mary S. Eiginmaður
hennar kom með hana í slysastofu
sjúkrahússins. Hann hafði fundið
hana meðvitundarlausa í rúmi sínu,
þegar hann kom heim frá vinnu.
Hún hafði tekið stóran skammt af
svefntöflum. Hún kom smám saman
Catholic Dig. —
125