Úrval - 01.03.1965, Blaðsíða 31
ÞEFDÝRIÐ Miri', HANN NlKKl
29
hann hefði fengið skot í sig. Hann
skall á bakið, staulaðist á fætur,
datt á nýjan leik og tók síðan tli
að æða um garðinn í sífelldum
hringjum eins og hann væri orðinn
vitskertur. Hinn hundurinn lét
sér ekki ófarir félaga síns að varn-
aði verða, lieldur æddi að systkin-
um Nikka litla. Þau hleyptu öll af
beint á hundspottið. Hundurinn tók
undir sig furðulegt heljarstökk og
engdist síðan sundur og saman á
jörðinni. Svo staulaðist hann burt
með erfiðismunum og var alltaf að
nugga augun með framlöppunum
öðru hverju.
Mér var það ósvikin ánægja að
frétta síðar meir, að hundspottið
hafði skreiðzt beint upp í bezta
legubekk húsbónda síns.
NÝ HEYRNARTÆKI
„Blite" örheyrnartækjunum frá Amplivox er lýst sem minnstu heyrn-
artækjum heimsins, og þau sjást alls ekki, þegar þau eru borin bak
við eyrað eða innbyggð í gleraugnaumgerð. Þau vega minna en hálf-
penny-peningur og mesta breidd þeirra er minna en hálfur þumlung-
ur. Samt hafa þau að geyma: hljóðnema, hlustunartæki, þrjá „transis-
tora“, eina „díodu“, þrjá þétta, sex „resistora", rafhlöðu og stilli.
Englisli Digest
HtJSDÝRAHALD
Hefur ykkur nokkurn tíma dottið í hug að fá ykkur enska maura
fyrir húsdýr? Fjölmargir í Frakklandi og Englandi kaupa maura til
þess að hafa sem húsdýr í stað hunda eða katta. Sérhver „nýlenda"
býr í glerkassa, sem hefur að geyma drottningu, „verkamenn", „vinnu-
konur“ og „hermenn". Þessir „Gullengjamaurar" (frá Bedfordshire)
eru ekki eitraðir og geta lifað árum saman á litlum vatns- og hunangs-
skammti „Nýlendan" kostar 3 pund og 3 shillinga — að meðtöldum
glerkassanum. EngliSh Digest
Það er erfitt að segja nákvæmlega til um það, hvar ein kynslóðin
hættir og sú næsta tekur við. En það er líklega um klukkan 9 e. h.
Ch. Ruffing
Líklega er það aðeins tvennt, sem krakkar vilja deila með öðrum
með góðu. Það eru smitandi sjúkdómar og aldur mömmu.
Wall Street Journal
Drengurinn, sem átti pabba, sem lofaði honum „að sitja í“ í skól-
ann og ók síðan áfram í vinnuna, á nú son, sem lofar honum að „sitja
í“ í vinnuna og ekur síðan áfram í skólann.
Wall Street Journal