Úrval - 01.05.1965, Side 31
UNDRALYFIÐ DMSO
29
inn, en Dr. Rosenbaum er prófessor
í læknisfræði viö læknadeild Ore-
gon háskóla. Rosenbaum sagöi:
,,Stan, annaðhvort ert þú ekki með
öllum mjalla—e Öa þú færð Nobels-
verðlaun.“ Hann samþykkti aö
reyna lyfiö á einkasjúklingum sín-
um.
Í sex tilfellum — meðan hann
va renn að þreyfa sig áfram varð-
andi hæfilega skammta af lyfinu
— sá hann lítinn eða engan árang-
ur. Hann var að því kominn að gef-
ast upp, en sagði þá við sjálfan
sig: „Stan Jacob er heiðarlegur og
óheimskur. Hann hlýtur að hafa
séð eilthvað sérstakt ella væri hann
ekki svona harðfylginn." Dag nokk-
urn fyrir jól fékk Rosenbaum sitt
fyrsta liöagígtart ilfelli — og þá
var liann að snúast á sveif með for-
svarsmönnum DMSO.
En þann dag í dag befur hvorki
Rosenbaum, Stanley Jacob né
nokkur annar svo mikið sem byrj-
að að leysa gátuna um kvalastill-
andi eiginleika DMSO. Sársauki er
álitinn vera boðsending — mjög
svipað rafleiðni eftir vírum ■— frá
taugahnoðum til lieilans. Þegar sett
er hindrun fyrir taugasellurnar,
eins og gert er með deyfilyfi, er
hugmyndin sú, að taugaboðin séu
stöðvuð. DMSO virðist í rauninni
setja skorður á taugarnar þannig,
að taugarnar jafna sig aftur og
verða ekki fyrir skaða, en hefur
einhvern veginn öðruvísi áhrif en
önnur efni, eftir því, sem síðustu
rannsóknir gefa til kynna.
Eins og sakir standa hefur lyfið
reynst áhrifaríkt við eftirgreind-
um sjúkdómum.
LIÐAGIGT. Varðandi þennan
sjúkdóm hefur árangurinn orðið
undraverðastur. Rosenbaum og
Jacob hafa náð fast að 100 procent
árangri í rúmlega tuttugu tilfellum,
og niðurstöður þeirra hafa verið
staðfestar af fjórum öðrum fremstu
sérfræðingum i gigtarsjúkdómum,
er notað hafa DMSO i fimmtiu
öðrum tilfellum á sjúkrahúsum ann-
ars staðar i Bandaríkjunum. Er
gagnrýnendur héldu þvi fram, að
árangurinn kynni að stafa af sál-
fræðilegum viðbrögðum — „handa-
álagningu hins inikla læknis Rosen-
baum,“ eins og einn kaldliæðinn
andmælandi sagði .— var lyfið
sent til Florida og skyldi nota það
við halta veðhlaupahesta. Eftir
tvo daga voru hestarnir aftur komn-
ir á skeiðvöllinn.
HÖFUÐVERKUR. Með því að bera
DMSO á ennið hefur Stanley Jacob
lækni tekizt að losa fólkið við viss-
ar tegundir höfuðverkjar ó um það
bil fimtán mínútum. Það er sérstak-
lega áhrifaríkt við höfuðverk, vegna
sára eftir svipuhögg og vegna lík-
amlegrar þenslu; það hefur engin
áhrif á höfuðverki, er stafa af sál-
rænum orsökum eða heilaæxli.
„í þessum tilfellum/ segir Stanley,
eru starfshættir lyfsins sannarlega
furðulegir. Við vitum, að það fer
í gegnum ennishúðinaa, en við vit-
um ekki livað gerist eftir það. Við
getum aðeins gert okkur i hugar-
lund að þar sem fólk finnur oft
til þrauta innarlega i líkamanum
vegna taugaboðanna, er berast, geta
hindranir á taugum í liúðinni lin-
að sársauka, sem liggur djúpt.“
VENJULEGT KVEF. Þó að litlar