Úrval - 01.05.1965, Síða 65

Úrval - 01.05.1965, Síða 65
IiBYKINGAR 63 eldrarnir að leggja áherzlu á þær hættur, sem vofa yfir strax í byrj- un. Þeir geta bent á vaxandi mæði, höfuðverki og minnkandi þrek, sem vindlingarnir valdi unglingun- um. En áhrifamest er þó, að geta bent á einhvern í fjölskyldunni, sem liafi einhvern sjúkdóm, sem rekja megi til vindlingareykinga. 5) Fáið unglingunum leikföng eða eitthvað i staðinn, sem geti haldið huga þeirra frá vindling- unum. Móðir nokkur keypti litla vindla, pípur, vindlingamunnstykki með gervivindlingum og fjölda af öðrum leikföngum til að hjálpa 17 ára dóttur sinni að hætta að reykja. Er stúlkan kvartaði um að hún væri i vandræðum með hendurnar á sér, keypti móðir hennar handa henni myndleir, kitti og málara- áhöld. Þetta hreif. Stúlkan hætti að reykja. 6) Uppörvið unglinginn í haráttu hans til að hætta reykingum og veitið honum siðferðilegan stuðn- ing. Ef sonur yðar segir: „Ég hef ekki snert vindling í tvo heila daga,“ þá sýnið hrifningu, hrópið húrra og óskið honum til hamingju. Látið hann finna, að þér, foreldrar lians, séuð hreykin af honum og viljið gera allt sem þér getið, inn- an skynsamlegra takmarka, honum til stuðnings í baráttu hans. 7) Við marga unglinga má nota tálbeitu — en það er vandasöm að- ferð. Foreldrarnir gætu stungið upp á einhverju í þessa átt: „Ef þú hættir að reykja spararðu kann- ske 50 dollara eða meira á næsta ári. En livað sem þú sparar, þá skal ég bæta við jafnmiklu. í árslokin geturðu svo notað þessa peninga til þess að kaupa þér eitthvað sem þig vantar eða langar í.“ Þetta kann að virðast, segir lækn- ir nokkur, eiga eitthvað skylt við mútur, en verðlaun í peningum fyrir drýgða dáð eru talin við- eigandi á mörgum öðrum sviðum daglegs lífs. 8) Sumir unglingar inundu þurfa að tala við heimilislækninn til þess að sannfærast um þá hættu, sem raunverulega stafar af vindlinga- reykingum. Heimsókn til læknisins gæti þá orðið það smiðshögg, sem réði úrslitum um, að hinn hikandi ung'lingur tæki þá ákvörðun að varpa frá sér vindlingnum. 9) Til eru þeir unglingar, sem einfaldlega láta að ósk foreldra sinna um að liætta að reykja. Þeir, sem þessum málum eru kunnugir, viðurkenna að sjálfsögðu, að sá hópur sé ekki í meirihluta meðal unglinganna. Samt sem áður munu sumir unglingar hætta að reykja, er þeir aðeins sannfærast um, að þessi ávani þeirra valdi mæðrum þeirra og feðrum þungum áhyggjum og sorg. 10) Foreldrar ættu að ýta undir unglingana að ræða í sínum hóp um skaðsemi reykinga. Flestir unglingar eru „conformistar“ (sem vilja laga sig eftir), sem hafa rót- gróinn áhuga á því, hvað vinir þeirra aðhafast, hvað þeir telja rétta hegðun og hverju þeir trúa. Ef nágrannaforeldrar gætu með lagni náð unglingunum saman til að rökræða um niðurstöður lækn- isfræðinnar um vindlingareyking- ar, gæti það út af fyrir sig orðið til
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.