Úrval - 01.05.1965, Blaðsíða 68
66
ÚRVAL
betri en sprauta af örvandi lyfi.
Ég hefi oft upplifaS það að liitta
vinkonu mina við kaffi eða há-
degisverð. Við höfum haft á-
nægju af þvi að masa samn, eða
þá að samræður okkar hafa orðið
handahófskenndar og jafnvel leið-
inlegar. En skyndilega og alveg ó-
vænt birtist karlmaður, — hérum-
bil sama hver það er, — og and-
rúmsloftið breytist. — Við hress-
umst stórum, og báðar verða lag-
legri og sniðugri á stundinni, og
líka mikið alúðlegri. Við tökum al-
gjörum stakkaskiptum, án þess að
vita af því. Konueðlið hefir sagt til
sín.
Ein ánægjan við það að vera
kona, er að vera hégómleg. Það
höfum við aldrei látið undir höf-
uð leggjast og ég vona að við ger-
um það aldrei. Það er auðvitað
hægt að ganga of langt i þeim efn-
um. En í aðalatriðum, hégómleg
andlitssnyrting, fallegir skartgrip-
ir, nýtízkuleg hárgreiðsla, blóm,
skemmtileg kvöld á veitingahúsum
og skrautlegur nær- og náttfatnað-
ur, er sannarlega upplífgandi til-
breytni, bezta heilsulind sem enn-
þá hefir þekkzt við þreytu, erfiði,
áhyggjum og vonbrigðum. Við
gætum auðvitað notað aðeins nauð-
synlegasta fatnað og þykk, haldgóð
nærföt, en ég held að heimurinn
yrði ósköp leiðinlegur og snauðari
en hann er, ef við gerðum það.
Karlmenn sem látnir eru lönd og
leið, án allrar uppörvunar, hafa
alveg sérstakt lag á því að eyði-
leggja þá ánægju og yndi, sem lifið
hefir upp á að bjóða, og eru þá
oft stirfnir og siðavandir, þótt þeir
hafi alls ekki ætlað að vera það.
Skemmtilegur innbyggður eigin-
leiki konunnar er tilfinningasemin,
hana er okkur eiginlegt að láta í
ljósi opinberlega. Þetta stormasama
yfirborð tilfinninga okkar, sem
kastast til og frá, eins og öldur
við sjávarmál, breiða líka blæju
yfir einn af okkar mestu kostum,
djúpa, óhagganlega ró, sem fíngerð,
ar konur sérstaklega eiga í svo rík-
um mæli. Furðulega oft sjáum við
ungar stúlkur ganga upp að altar-
inu, án þess að láta sér bregða.
Einnig þegar þær eru lagðar inn á
fæðingardeildina, og síðast en ekki
sízt, þegar þær standa yfir slösuðu
barni sínu, löðrandi i blóði. Þegar
karlmennirnir lenda í.... Nei, ég
ætla ekki að vera ótugtarleg.
Svo er það lika sniðugt að vera,
undir jsessu glaða, hirðuleysislega
yfirborði rólega, gamla móðir jörð,
— vita allt, — gleyma engu og
hugga alla, sérstaklega börnin.
Ekki alls fyrir löngu vakti
þriggja ára gamall sonur minn mig
upp af fasta svefni, og fékk mig
til að klöngrast yfir ganginn, að-
eins til að vefja handleggjunum
fast um háls mér og segja: —
Mamma, ég er vinur þinn. — Hon-
um hafði allt í einu dottið þetta í
hug. Hver gældi við hvern veit ég
ekki, en indælt var það.. Líklega
eru engin bönd eins sterk og þau,
sem bundin eru klukkan þrjú að
nóttu.
Hvað er það svo fleira sem er
skemmtilegt við það að vera kona?
Allskonar vinna, þ. e. a. s. ein-
hver vinna sem þú sjálf hefir val-
ið, en ekki eitthvað sem þröngvað