Úrval - 01.05.1965, Blaðsíða 76
74
ÚRVAL
eyrnaverkur og heyrnarleysi. Því
miður geta börn ekki sagt til um,
hvar þau finna til, en þau geta
grátið og gera það. Þau fá hita,
verða lystarlaus, eirðarlaus og fá
ef til vill niðurgang, og allt þetta
gefur móðurinni til kynna, að eitt-
hvað sé að. Ef barnið nuddar eyr-
un eða lemur höfðinu ofan í kodd-
ann sinn, hefur það að líkindum
eyrnaverk. Það getur verið eyrna-
bólga, tanntaka — eða hvort tveggja.
Þá er bezt að fá fullvissu og spyrja
lækninn.
Sem hetur fer, er svo að segja
alltaf hægt að lækna eyrnabólgu
fullkomlega með lyfjum, sem annað
hvort eru tekin inn, eða, ef bólgan
er mjög bráð, gefin með sprautum.
í flestuin tilvikum hverfur hólgan
á tuttugu og fjórum klukkustund-
um, en heyrnardeyfa og aðrar auka-
verkanir geta verið lengur að
hverfa. í örfáum tilfellum heldur
hólgan áfram eða að gröfturinn
getur gengið svo djúpt í beinið,
að uppskurður verður óumflýjan-
legur. Vera má, að ekki þurfi annað
en að gera lítinn skurð í liljóðhimn-
una til að hleypa greftinum út,
en svæfing er nauðsynleg og sjúkra-
húsvist. Ef til vill verður að gera
meiri uppskurð til að fjarlægja
sýktan beinhluta, en það er orðið
mjög fátítt.
í hvoru tilfellinu sem er, eru
áhyggjur ástæðulausar og því
fyigja engar óþægilegar umbúðir
eða aukaverkanir. Meðan lyfin eru
að verka, og það tekur um einn dag,
ráðleggja læknar gjarnan að gefa
hinum unga sjúklingi hálfa aspirín-
töflu til að deyfa sársaukann. Ef
engin útferð er úr eyranu og hljóð-
himnan er heil, getur örlítið af
volgri olífuolíu í hlustina dregið
úr óþægindunum, en gæta skal
þess, að hafa olíuna ekki of heita
eða að nota of mikið af henni.
Siendurtekin eyrnabólga stendur
oft í sambandi við skemmda nef-
og hálskirtla, og getur þá verið ráð-
legt að fjarlægja þá. En því miður
halda sum börn áfram að hafa
verki og bólgur í eyrum allt til
kynþroskaaldurs, og valda með
því bæði foreldrum sínum og lækn-
um áhyggjum.
SÁR KÝLI
Einn sárasti kvilli, sem hægt er
að hafa, er kýli í eyranu. Þau koma
aðeins þar sem hárpokar eru, því
sýklar ganga djúpt í hörundið
meðfram hársrótunum og framkalla
roða, bólgu og siðar gröft. Hár
eru aðeins í fremsta hluta hlustar-
innar, en þar er lítið rúm fyrir
þenslu, og uppblásið kýlið veldur
miklum sársauka i eyranu. Heyrn-
armissir er fátiður, og eftir fáeina
daga springur kýlið, sjúklingnum
til mikils léttis.
Margir læknar gefa mótlyf við
þessari kýlismyndun, en sum börn
eru svo óheppin að fá kýli hvað
eftir annað og fá þau hér og þar
um andlitið. Þessi börn bera venju-
lega bakteríur i húðinni. Við þessu
gefa læknar strangar heilbrigðis-
reglur og oft breytingar á mataræði,
svo sem að draga úr neyzlu matar,
sem inniheldur kolefni, vetni og
súrefni (s.s. sykur, sterkju, sellu-
lósa) en auka neyzlu ávaxta og nýs
grænmetis.