Úrval - 01.11.1965, Síða 8
6
ÚRVAL
við endurtækjum kynninguna og
segðum aftur til nafna okkar. Og
mér til mikillar undrunar var sú
dökkhærða „ungfrú“, en hin „frú“.
Ég gat bara alls ekki trúað þessu.
En ég lét ekki á neinu bera, og
síðan fórum við að tala um bækur.
Nú er það óheppileg staðreynd,
að maður öðlast ekki miklu meira
við lestur bóka en maður er reiðu-
búinn til þess að leggja sjálfur af
mörkum við bókalesturinn. Og er
ég hlustaði á athugasemdir ungu
kvennanna um ýmsar bækur, þá
fannst mér enn á ný, að sú dökk-
hærða væri „frú“, en hin, sem ég
kallaði „stóru stelpuna“ með sjálf-
um mér, væri „ungfrú“. Hún talaði
um einmitt þá kafla og þau atriði
í bókunum, sem ég gat búizt við,
að ógift stúlka hefði áhuga á. Hún
hafði augsýnilega ekki tekið eftir
þeirri kímni eða viðkvæmni, sem
giftur maður eða gift kona mundi
hrífast af.
Og mitt í hrókaræðum okkar kom
roskinn maður skyndilega að borð-
inu til okkar og sagði: „Háttatími,
ungfrú góð!“ Þetta var pabbi „stóru
stelpunnar“. Leyndarmálinu hafði
verið ljóstrað upp. Hún játaði sam-
stundis. Henni hafði þótt það
skemmtileg hugmynd að látast vera
ung eiginkona. Og síðar komst ég
að því, að „ungfrúin“ var í rauninni
gift kona, sem hafði notað titilinn
„ungfrú“ vegna þess að hún var eig-
andi fyrirtækis, sem rekið var undir
því ættarnafni, er hún bar, áður
en hún giftist. Hún sagði, að það
hefði tekið sig nákvæmlega 10 sek-
úndur að verða sannfærð um, að
ég væri giftur.
Karlmenn eru nefnilega óttalegir
aulabárðar við að blekkja konur.
Ég hef jafnvel heyrt þá vitna í orð
eiginkonunnar í daðri sínu við ungar
stúlkur! Já, mér þætti mjög gaman
að verða vitni að því, að einhverj-
um slyngum, ungum manni tækist
að blekkja konu. Sko, ég fulíyrði
alls ekki, að slíkt sé ekki hægt! En
ég hef aldrei orðið vitni að slíku,
og ég býst ekki við, að ég eigi slíkt
eftir. Og í hvert skipti sem ég heyri
konu segja: „Ég vissi ekki, að hann
var giftur!" — þá get ég ekki annað
en skellihlegið!
Allir setjast fyrr eða síðar að veizluborði til þess að gæða sér Þar
á réttum, sem ganga undir nafninu „afleiðingar".
Robert Louis Stevenson
Venjulegir menn hafa samúð með þeim, sem bíður ósigur. Menn, sem
náð hafa miklum frama i veröldinni. hafa samúð með þeim, sem vinnur
sigur. Irish Digest
Saidhbhreas sior subhailce: Dyggðin er eilífur auður.
Gamall írskur málsháttur