Úrval - 01.11.1965, Side 34
32
ÚRVAI.
höfum orðið vör við „amblyopiu“,
getum við alls ekki fengið foreldr-
ana til þess að fara með barnið til
augnlæknis. Við skoðuðum um 3000
börn undir skólaaldri í Salt Lake
City og' næsta nágrenni í fyrra. En
það var aldrei farið til augnlækn-
is með um þriðjung þeirra barna,
sem þangað áttu að fara.“
Og þessi starfsemi nær enn ekki
nema til lítils hluta barna undir
skólaaldri. f Utahfylki voru aðeins
tæp 10% barna í þessum aldurs-
flokki skoðuð í fyrra. í Connecti-
cutfylki, þar sem starfsemi þessi
er líklega orðin útbreiddust, fara
slíkar skoðanir fram í 48 borgum.
En það er aðeins fjórðungur alh-a
borga fylkisins, og það er aðeins
lítill hluti barnanna í borgum þess-
um, sem skoðaður er.
Um þetta mál segir dr. Ferree á
þessa leið: „Nú er það langsamlega
mest aðkallandi, að foreldrar geri
sér grein fyrir hættu þeirri, sem
þannig getur steðjað að börnum
þeirra."
Sjálfboðaliðar eru að reyna að
leysa ur vanda þessum um gervöll
Bandaríkin. f Manchester í Massa-
chusettsfylki hafa eiginkonur með-
lima Lionsklúbbsins rekið áróður
fyrir starfsemi þessari og kynnt
hana. í Houston í Texasfylki skipu-
leggja sjálfboðaliðar augnskoðanir
í risakjörbúðum til þess að vekja
athygli. f Georgíu hefur „Verzlunar-
ráð ungra kaupsýslumanna" byrj-
að herferð til þess að vekja athygli
manna á vandamáli þessu.
Skoðunaraðferðir við leit að „am-
blyopiu", sem Landssamband til
hindrunar blindu“ hefur fullkomn-
að eru jafnvel ekki ofviða óvönum
sjálfboðaliðum. Nú er vandinn fólg-
inn í því að fá nægilega marga sjálf-
boðaliða, að því er starfsmenn
Landssambandsins hafa tjáð. Lands-
sambandið hefur því skipulagt sér-
staka áætlun um slíka augnskoðun,
sem hópar sjálfboðaliða geta síðan
framkvæmt, þ.e. í áætluninni er
fjallað um hin ýmsu skipulagsat-
riði og ráðleggingar fylgja um það,
hvernig beri að framkvæma þau.
Slíkar upplýsingar eru mjög hand-
hægar fyrir hvern þann hóp sjálf-
boðaliða, sem áhuga hefur á að
hefja slíka starfsemi.
„Nú lítur loks út fyrir, að okkur
muni takast að sigrast á „amblyo-
piu“ í náinni framtíð,“ segir dr.
Ferree. „Fúsar hendur geta nú
bjargað sjón ótal barna.“
Skilgreining fyrirbrigðisins golf: Líkt og að starfa við bréfaútburð,
skurðgröft og gólfteppabarsmíð, ef einhver skyldi reyna öll þrjú störf-
in sama síðdegið. Oeorge Burns
„Garðurinn minn var svo dásamlegur í ár,“ sagði eigandi grænmetis-
garðsins, „að kjúklingar nágranna míns fengu fyrstu verðlaun á alifugla-
sýningunni"